Erlent

Sprengjutilræði í Pakistan á þjóðhátíðardegi

Tveir létust og níu særðust þegar sprengjur sprungu á tveimur stöðu í Suðvestur-Pakistan í dag. Sú fyrri sprakk við sölubás í bænum Hub þar sem verið var að selja pakistanska fánann í tilefni af þjóðhátíðardegi Pakistana og þar létust tveir og sex særðust. Þá særðust þrír þegar sprengja sprakk á baðherbergi rakarastofu í bænum Naushki. Ekki er ljóst hver ber ábyrgð á sprengingunum og hvort þær eru tengdar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×