Innlent

Stöðvuðu vinnu á byggingarsvæði álvers

Hópur fólk sem er andstæðingar Kárahnjúkavirkjunar stöðvaði í morgun vinnu á byggingarsvæði Bechtel og Alcoa á Reyðarfirði til þess að láta í ljós andstöðu sína við virkjuna. Þetta kemur fram í tilkynningu frá hópnum. Hópurinn fór einnig inn á skrifstofu Hönnunar á Reyðarfirði til að sýna andstöðu sína í verki en Hönnun hefur unnið með Landsvirkjun að Kárahnjúkavirkjun. Frekari upplýsingar liggja ekki fyrir að svo stöddu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×