Innlent

Slasaðist í veltu á Fljótsdalsheiði

MYND/Róbert

Ökumaður var fluttur á sjúkrahúsið á Akureyri eftir að hann missti stjórn á bíl sínum á Fljótsdalsheiði í gær með þeim afleiðingum að bíllinn valt og er gerónýtur. Maðurinn, sem var einn í bílnum, slapp hins vegar lítið meiddur. Rildrög slyssins liggja ekki fyrir. Þá slasaðist ökumaður þegar bíll hans valt í Víkurskarði í nótt. Hann var fluttur á sjúkrahúsið á Akureyri til aðhlynningar en farþegi hans slapp ómeiddur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×