Erlent

Vopnahlé milli Ísraels og Hizbollah-skæruliða

Ísraelskir hermenn taka skothylki úr byssum sínum við komuna til norður Ísrael í morgun. Vopnahlé milli Ísraels og Hizbollah-skæruliða tók gildi klukkan fimm í morgun að íslenskum tíma og varð þá lát á mánaðrátökum sem hafa kostað yfir 900 manns lífið.
Ísraelskir hermenn taka skothylki úr byssum sínum við komuna til norður Ísrael í morgun. Vopnahlé milli Ísraels og Hizbollah-skæruliða tók gildi klukkan fimm í morgun að íslenskum tíma og varð þá lát á mánaðrátökum sem hafa kostað yfir 900 manns lífið. MYND/AP

Vopnahlé milli Ísraels og Hizbollah-skæruliða tók gildi klukkan fimm í morgun að íslenskum tíma. Ísraelsher hélt áfram árásum á skotmörk í Líbanon allt fram á síðustu stundu.

Ríkisstjórnir Ísraels samþykkti í gær að fara að vopnahléstilmælum Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna en Ísraelar hafa áskilið sér rétt til sjálfsvarnar ef Hizbollah-liðar virði ekki vopnahléð. Ríkisstjórn Líbanons samþykkti sömuleið ályktunina en tveir ráðherrar Hisbollah settu þó fyrirvara við algjöra afvopnun skæruliðahópsins.

Ísraelska blaðið Haaretz hermir að Ehud Olmert, forsætisráðherra Ísraels, hafi fyrirskipa hernum að stöðva árásir sínar klukkan tvö að íslenskum í nótt breska ríkisútvarpið greinir frá því að loftárárásir hafi staðið yfir þar til klukkan var kortér í fimm.

Fregnir bárust af því í morgun að einhverjar íraelskar hersveitir hefðu yfirgefið Suður-Líbanon en talsmenn hersins neita að gefa upp hversu margar þær eru. Talið er að um 30 þúsund ísraelskir hermenn séu í Líbanon og ísraelsk yfirvöld segjast ekki munu draga herinn að fullu burt fyrr en alþjóðlegar friðargæslusveitir koma til Suður-Líbanons.

Menn virðast hóflega bjartsýnir varðandi vopnahléð enda stendur enn styrr um það innan ríkisstjórnar Líbanons og þá hafa Hizbollah-liðar ekki tjáð sig um það. Þá þykir ljóst að þær þúsund Líbana sem flúið hafa átakasvæðin muni ekki snúa til síns heima fyrr en vopnahléð hefur staðið yfir í nokkra daga. Átök Ísraela og Hizbolla höfðu staðið yfir í í 34 daga þegar vopnahléð tók gildi en talið er að yfir 1000 Líbanar og um 150 Ísraelar hafi fallið í átökunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×