Erlent

Síamstvíbuarar gangast undir erfiða aðgerð

MYND/AP

Læknar í Salt Lake City í Bandaríkjunum reyna nú hvað þeir geta til að aðskilja tvíburarsysturnar Kendru og Maliyuh Herrin sem eru samvaxnar fyrir neðan mitti. Kendra og Maliyah eru fjögurra ára. Þær hafa aðeins tvo fætur og eitt nýra. Ekki er vitað til þess að áður hafi verið reynt að aðskilja síamstvíbura með aðeins eitt nýra.

Ef allt gengur að óskum fær Kendra nýrað en Maliyah verður sett í nýrnavél í þrjá til sex mánuði þar til grætt verður í hana nýtt nýra. Talið er að aðgerðin taka allt að sólahring.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×