Innlent

Norrænu seinkar enn

MYND/Vísir
Ferjunni Norrænu, sem seinkaði verulega eftir að hafa siglt á bryggjukant í Þórshöfn í Færeyjum í fyrrakvöld, seinkaði líka á loka kaflanum til Seyðisfjarðar, þar sem skipið hreppti illviðri á leiðinni. Það var því ekki fyrr en um miðnætti, að það hélt frá Seyðisfirði á ný hálfum sólarhring á eftir áætlun. Rösklega ellefu hundruð farþegar komu hingað með ferjunni, sem mun vera met.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×