Innlent

World Class hyggur á landvinninga í Danmörku

MYND/E.Ól

Eigendur líkamsræktarkeðjunnar World Class á Íslandi bætast nú í hóp útrásarmanna til Danmerkur því þeir hafa fest kaup á þrettán líkamsræktarstöðvum þar í landi. Þeir sjá mikil sóknarfæri í Danmörku og áforma að koma á fót tugum líkamsræktarstöðva í viðbót.

Stöðvarnar sem World Class hefur keypt eru reknar hafa verið undir merkjum Equinox í Danmörku. Tólf stöðvanna eru á Jótlandi og ein í Kaupmannahöfn sem er svipuð að stærð og World Class í Laugum.

Björn Leifsson, annar eigandi World Class, sér mikla uppbyggingarmöguleika í Danmörku og segir kannanir hafa sýnt að pláss sé fyrir 100 nýjar stöðvar í landinu. Um sex prósent Dana nýti heilsuræktarstöðvar en 15-16 prósent Íslendinga og 10 prósent Svía og Norðmanna. Það séu því miklir möguleika í Danmörku og á teikniborðinu séu um 28 stöðvar í viðbót víðs vegar um Danmörku. Búið sé að ákveða staðsetningar og byrjað að ræða við suma fasteignaeigendur um húsnæði. Næsta vetur sé svo stefnan að opna tvær stöðvar í Kaupmannahöfn og jafnvel kaupa eina í notkun. Uppbyggingin verði þannig hröð.

World Class tekur við rekstri Equinox-stöðvanna nú um mánaðamótin og Björn segir að hugmyndir að baki World Class verði fluttar út. Stöðvarnar sem keyptar hafi verið séu með hæsta standardinn í Danmörku en þau hjá World Class telji sig geta gert betur og módelið sem sett hafi verið upp hér á landi henti vel í Danmörku að þeirra mati.

Aðspurður hvort World Class hyggi á á frekari landvinninga segi Björn að byrjað verði á þessu en hér á landi sé ætlunin að opna World Class stöð við sundlaugina á Seltjarnarnesi í september á næsta ári. Þetta sé ágætt í bili en ef vel gangi sé aldrei að vita hvar verði drepið niður fæti næst.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×