Innlent

Leysa þarf úr óþolandi ástandi í hluthafahópi

MYND/Vilhelm

Leysa þarf úr því óþolandi ástandi sen ríkir í hluthafahópi Straums Burðaráss, segir Björgólfur Thor Bjorgólfsson, stjórnarfornaður fjárfestingabankans. Hann ásamt meirihluta stjórnar rak í gærkvöld forstjóra bankans og réði nyjan í staðinn.

Það hafa heldur betur verið átök innan stjórnar Straums-Burðaráss að undanförnu og á stjórnarfundi í gær sauð upp úr. Þá ákvað meirihluti stjórnar að reka forstjórann, Þórð Má Jóhannesson, og ráða Friðrik Jóhannsson í staðinn. Björgólfur Thor Björgólfsson, stjórnarformaður félagsins, segir að athygli Þórðar Más hafi beinst um of að átökum innan hluthafahópsins. Ljóst er að fram undan er uppgjör og hluthafafundur hefur verið boðaður 19. júlí.

Grimmileg átök hafa verið milli tveggja fylkinga í Straumi-Burðarási. Björgólfur Thor Björgólfsson hefur farið fyrir annarri en Magnús Kristinsson hinni. Í fjölmiðlum hafa stór orð og þung fallið í þessum átökum.

Björgólfur Thor segir að um ágreining sé að ræða um stefnu fyrirtækisins. Hafa beri í huga að það séu 10 mánuðir síðan Straumur og Burðarás sameinuðust og þetta hafi verið tvö ólík fyrirtæki. Venjulega taki samrunaferli á bilinu 12-18 mánuði. Í þessu tilfelli hafi það ekki gengið í stjórninni. Það hafi komið upp deilur sem þurfi að leysa og þær verði leystar á hluthafafundi.

Aðspurður hvort hann eigi von á því að þeir sem séu honum ósammála í hluthafahópnum sætti sig við forstjóraskiptini segir Björgólfur Thor að það sé ágreiningur um þau. Hann viti ekki hvort menn láti sér þau lynda en þeir séu sammála um að lúta vilja hluthafafundar. Þá verði kjörið í stjórn og það sé meirihluti hennar sem ráði. Aðspurður á hann ekki von á því að hluthafafundur muni breyta valdahlutföllum innan stjórnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×