Sport

Öll mörkin á HM í símann

Viðskiptavinir Og Vodafone geta fengið öll mörkin á HM beint í símann
Viðskiptavinir Og Vodafone geta fengið öll mörkin á HM beint í símann

Þeir sem eiga Vodafone Live gsm-síma þurfa ekki að hafa áhyggjur af því að missa af neinu þegar HM hefst á morgun, því Og Vodafone ætlar að bjóða viðskiptavinum sínum upp á að fá öll mörkin í keppninni send í síma sinn. Vodafone hefur fram að þessu boðið upp á þessa þjónustu í enska boltanum og meistaradeildinni og heimsmeistaramótið sjálft verður engin undantekning.

Hægt er að sækja þjónustuna í gegn um Vodafone Live, skrá sig á heimasíðunni vodafone.is, eða senda SMS skilaboðin "HM2006" í númerið 1900. Þeir sem vilja prófa þessa þjónustu áður en þeir skrá sig geta sent SMS-textann HMPRUFA í símanúmerið 1900 og fá þá sent til baka eitt mark úr keppninni án endurgjalds.

Þeir sem skrá sig fá hvert einasta mark sem skorað verður í keppninni sent í símann sinn. Vodafone mun svo halda áfram með þessa skemmtilegu þjónustu í haust þegar enski boltinn og meistaradeildin fara að rúlla á ný.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×