Formúla 1

Eðla rölti inn á brautina á æfingu

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Eðlan Lionel á röltinu á Formúlu 1 brautinni í Singapúr.
Eðlan Lionel á röltinu á Formúlu 1 brautinni í Singapúr. getty/Rudy Carezzevoli

Óboðinn gestur setti strik í reikning ökumanna á æfingu fyrir kappaksturinn í Singapúr í Formúlu 1.

Þegar æfingin í morgun var nýhafin tölti eðla inn á brautina eins og ekkert væri sjálfsagðara. Stöðva þurfti æfinguna meðan eðlan, sem Fernando Alonso kallaði Lionel, rölti um brautina.

Þegar starfsmaður í skærgulu vesti ætlaði að hrekja Lionel af brautinni tók dýrið til fótanna og fór hratt yfir.

Á endanum tókst þó að handsama Lionel og æfingin gat því hafist á ný eftir rúmlega tíu mínútna hlé.

Kappaksturinn í Singapúr fer fram á morgun. Carlos Sainz vann keppnina í Singapúr í fyrra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×