Sport

Beckham á leið á Old Trafford?

Spilar David Beckham á Old Trafford í ágúst?
Spilar David Beckham á Old Trafford í ágúst? NordicPhotos/GettyImages

Svo gæti farið að enski landsliðsmaðurinn David Beckham léki aftur á Old Trafford fljótlega, en fréttir herma að forráðamenn gamla félagsins hans, Manchester United, hafi boðið Real Madrid að spila við sig æfingaleik í fyrstu vikunni í ágúst, þegar ný viðbygging vallarins verður formlega tekin í notkun.

Sagt er að AC Milan og Barcelona hafi hafnað tilboði Manchester United að mæta þeim í æfingaleik 8. eða 9. ágúst, en Old Trafford mun þá líklega taka um 76.000 manns í sæti.

Ekki er talið að Real Madrid geti samþykkt þetta tilboð fyrr en að loknum forsetakosningum hjá félaginu 2. júlí næstkomandi, en hver veit nema núverandi landsliðsþjálfari Englendinga, Sven-Göran Eriksson, verði þá orðinn knattspyrnustjóri spænska liðsins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×