Sport

Keane gæti spilað á næstu leiktíð

Roy Keane gæti spilað eitt ár enn ef niðurstöður lækna í sumar verða jákvæðar
Roy Keane gæti spilað eitt ár enn ef niðurstöður lækna í sumar verða jákvæðar NordicPhotos/GettyImages
Michael Kennedy, umboðsmaður miðjumannsins Roy Keane hjá Glasgow Celtic, segir ekki loku fyrir það skotið að leikmaðurinn spili með liðinu á næstu leiktíð. Keane fer til sérfræðings þegar hann kemur heim úr sumarleyfi sínu á næstu vikum og þá verður líklega tekin ákvörðun um framhaldið. Talið er að það muni freista Keane að spila með liðinu í Meistaradeildinni á næstu leiktíð, en hann á sem kunnugt er eitt ár eftir af samningi sínum við meistarana.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×