Sport

Andy Johnson á leið til Wigan?

Andy Johnson er á leið frá Palace og gengur væntanlega í raðir Wigan á næstu dögum ef marka má nýjustu fregnir
Andy Johnson er á leið frá Palace og gengur væntanlega í raðir Wigan á næstu dögum ef marka má nýjustu fregnir NordicPhotos/GettyImages
Stjórnarmaður Crystal Palace hefur staðfest að félagið hafi í dag samþykkt 8,5 milljón punda tilboð úrvalsdeildarfélagsins Wigan í framherjann Andy Johnson. Everton og Bolton hafa einnig verið á höttunum eftir landsliðsmanninum, en þeim hefur nú verið sagt að hækka tilboð sín ella muni hann verða seldur til Wigan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×