Sport

Eiður Smári er til sölu

NordicPhotos/GettyImages

Jose Mouriho gaf það út í samtali við Sky-sjónvarpsstöðina í dag að Chelsea væri tilbúið að taka við kauptilboðum í landsliðsfyrirliðann Eið Smára Guðjohnsen. Mourinho segir Chelsea áfram hafa not fyrir hann, en segir að félagið muni þó athuga málið ef gott tilboð fæst í hann.

"Staða Eiðs er sú að hann er frábær knattspyrnumaður og viljum gjarnan halda honum, en við erum tilbúnir að hlusta ef við fáum gott tilboð í hann," sagði Mourinho.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×