Sport

Slegist um Andy Johnson

Andy Johnson hélt tryggði við Palace þegar liðið féll í 1.deildina í fyrra, en nú er talið víst að hann fari aftur í úrvalsdeildina
Andy Johnson hélt tryggði við Palace þegar liðið féll í 1.deildina í fyrra, en nú er talið víst að hann fari aftur í úrvalsdeildina NordicPhotos/GettyImages

Nú er útlit fyrir að nokkur úrvalsdeildarfélög muni há harða baráttu um að landa framherjanum Andy Johnson frá Crystal Palace í sumar eftir að liði hans tókst ekki að vinna sér sæti í úrvalsdeildinni á næstu leiktíð eins og til stóð. Everton hefur nú bæst í hóp Bolton og Wigan, sem talin eru ætla að bjóða allt að 7 milljónir punda í Johnson.

Framherjinn er þessa dagana við æfingar með enska landsliðinu, en hann er einn af mönnunum sem eru á varalista Sven-Göran Eriksson vegna meiðsla þeirra Wayne Rooney og Michael Owen.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×