Sport

Drogba verður ekki seldur

Mourinho ætlar ekki að selja Drogba
Mourinho ætlar ekki að selja Drogba NordicPhotos/GettyImages

Jose Mourinho segir að ekki komi til greina að selja Fílabeinsstrandarmanninn Didier Drogba frá Chelsea, en framherjinn hefur látið það í ljós að undanförnu að hann vilji fara frá félaginu.

"Drogba er ekki til sölu, svo einfalt er það. Ef hann spilar og er ánægður - gott mál. Ef hann ætlar að fara í fýlu - hann um það, þá verður hann bara ekki í liðinu. Hann er einn af þeim leikmönnum sem kemur ekki til greina að selja," sagði Mourinho.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×