Sport

Thierry Henry semur við Arsenal

Thierry Henry
Thierry Henry NordicPhotos/GettyImages

Thierry Henry hefur skrifað undir nýjan fjögurra ára samning við Arsenal og hefur þar með bundið enda á allar sögusagnir um að hann sé á leið til Barcelona á Spáni. Henry sagði að hjartað hefði ráðið ferðinni hjá sér og að hjartað hefði sagt honum að vera áfram hjá Arsenal.

"Það kom til greina hjá mér að breyta til, en ég hugsa með hjartanu og hjartað sagði mér að velja Arsenal. Það er frábært að spila á Englandi, áhorfendur og stuðningsmenn eru ástríðufullir og traustir og virða leikmennina. Þessi samningur sem ég undirritaði í dag er minn síðasti sem atvinnumaður og ég mun því aldrei leika á Spáni, heldur klára ferilinn hér hjá Arsenal.

Úrslitaleikurinn í meistaradeildinni sýndi mér það sem ég vildi vita, að við værum með lið sem stæði þeim bestu snúning. Stuðningsmennirnir hafa líka verið frábærir og viðbrögð þeirra við tapi okkar í úrslitaleiknum voru má segja það sem gerði útslagið fyrir mig. Ég get ekki yfirgefið stuðningsmenn okkar," sagði Henry. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×