Sport

Verður Gerrard framherji?

Steven Gerrard fór á kostum í úrslitaleik enska bikarsins á dögunum
Steven Gerrard fór á kostum í úrslitaleik enska bikarsins á dögunum NordicPhotos/GettyImages

Sven-Göran Eriksson segir vel koma til greina að Steven Gerrard verði færður í framlínu enska landsliðsins á HM ef svo fer að Wayne Rooney nái sér ekki af meiðslum sínum í tæka tíð.

Gerrard hefur alltaf verið mjög iðinn við markaskorun og setti til að mynda tvö mörk í úrslitaleik enska bikarsins á dögunum eins og frægt er orðið. Eriksson segir Gerrard mjög fjölhæfan og því komi vel til greina að láta hann spila nýja stöðu á HM.

"Gerrard getur spilað margar stöður á vellinum og ein þeirra er að spila sem annar framherji. Ég er viss um að hann gæti meira að segja spilað sem aðalframherji liðsins, en við verðum að sjá til hvað verður með Wayne Rooney. Ég vonast auðvitað til þess að geta haft Rooney og Owen frammi á HM, en eins og ég segi, kemur vel til greina að setja Gerrard framar á völlinn."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×