Sport

Barcelona - Cadiz í beinni

Markamaskínan Samuel Eto´o og félagar í Barcelona fara langt með að verja titil sinn með sigri í kvöld
Markamaskínan Samuel Eto´o og félagar í Barcelona fara langt með að verja titil sinn með sigri í kvöld NordicPhotos/GettyImages
Nú klukkan 19:50 hefst leikur Barcelona og Cadiz í spænska boltanum og er hann sýndur í beinni útsendingu á Sýn. Börsungar geta með sigri í kvöld farið ansi langt með að verja deildarmeistaratitil sinn, en eiga erfitt verkefni fyrir höndum gegn Cadiz sem er í fallbaráttunni og hefur ekki tapað í þremur leikjum í röð. Barcelona getur tryggt sér titilinn á morgun ef Valencia verður á í messunni í sinni viðureign við fallkandidata Alaves.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×