Innlent

Skemmdarverk unnin á bílum

Skemmdarverk voru unnin á sjö bílum við Suðurbugt í Reykjavíkurhöfn í morgun. Rúður bílanna voru brotnar og rótað í bílunum en litlu ef einhverju stolið.

Þá var maður handtekinn í Breiðholti fyrir rúðubrot og annar maður var handtekinn í miðbænum grunaður um innbrot. Mikið var að gera hjá lögreglu í morgun og milli sex og sjö var á mörkunum að lögreglan hefði undan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×