Sport

Nú þurfum við að sanna okkur

Frank Rijkaard og hans menn eru klárir í slaginn gegn AC Milan í kvöld
Frank Rijkaard og hans menn eru klárir í slaginn gegn AC Milan í kvöld NordicPhotos/GettyImages

Frank Rijkaard segir að öll lið gangi í gegn um það að þurfa að komast fram úr sér sterkari og reyndari liðum til að verða Evrópumeistarar og segir að nú sé kominn tími til fyrir sína menn í Barcelona að gera einmitt það gegn AC Milan í fyrri leik liðanna í Meistaradeildinni í kvöld. Leikur liðanna verður í beinni útsendingu á Sýn og hefst útsending klukkan 18:30 í kvöld.

"AC Milan er með sterkt og reynslumikið lið, en það kemur alltaf að því að verða kynslóðaskipti og nú er komið að okkur að reyna að slá þeim við. Vonandi náum við að velta þeim af stalli og verða liðið sem allir vilja vinna í Evrópu," sagði Rijkaard og bætti við að hann bæri mikla virðingu fyrir félaginu sem hann spilaði með sjálfur á sínum tíma.

"Milan hefur verið á toppnum í 15 ár af því þar hafa menn farið eftir sömu sigurformúlu öll þessi ár. Kerfin breytast og það koma nýjir leikmenn inn í þetta, en stefnan er alltaf sú sama og það skilar liðinu svona góðum árangri. Hvað okkur varðar þurfum við aftur á móti að halda okkur við okkar stefnu til að vinna. Við verðum að skora mark og verðum að forðast að tapa fyrri leiknum," sagði Rijkaard.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×