Sport

Arsenal áfram

Nedved fær hér að líta rauða spjaldið hjá dómaranum í kvöld
Nedved fær hér að líta rauða spjaldið hjá dómaranum í kvöld NordicPhotos/GettyImages
Arsenal er komið í undanúrslit Meistaradeildar Evrópu eftir markalaust jafntefli við Juventus í Tórínó í kvöld. Arsenal vann fyrri leikinn 2-0 á heimavelli sínum og hélt vel aftur af ítalska liðinu í kvöld. Pavel Nedved fékk að líta rauða spjaldið hjá Juventus undir lokin, en heimamenn virkuðu frekar daufir í leiknum og virtust lítinn áhuga hafa á því að komast áfram í keppninni. Arsenal mætir spænska liðinu Villareal í undanúrslitunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×