Erlent

Stóru flokkarnir myndi stjórn

Klaus og Paroubek Jiri Paroubek, leiðtogi jafnaðarmanna, og Vaclav Klaus Tékklandsforseti á blaðamannafundi í Prag.
Klaus og Paroubek Jiri Paroubek, leiðtogi jafnaðarmanna, og Vaclav Klaus Tékklandsforseti á blaðamannafundi í Prag. MYND/AP

Jiri Paroubek, leiðtogi tékkneskra jafnaðarmanna, hefur lagt til að mynduð verði samsteypustjórn síns flokks og höfuðkeppinautarins, íhaldsflokksins ODS. Það sé eina færa leiðin út úr pattstöðunni sem ríkt hefur í stjórnmálum landsins frá því kosið var til þings í sumar, en þeim lyktaði þannig að pólitísku fylkingarnar fengu nákvæmlega jafnmarga þingmenn, hundrað hvor.

Mirek Topolanek, leiðtogi ODS, sem fór fyrir minnihlutastjórn sem féll í atkvæðagreiðslu um trausts­yfirlýsingu, tjáði sig ekki um tillöguna. Flokkur hans hafði áður hafnað hugmyndinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×