Erlent

Kastró er átján kílóum léttari

Fídel Kastró á náttfötunum
Nýjum myndum hefur verið dreift af hinum aldna forseta, þar sem hann sést m.a. lesa dagblöð.
Fídel Kastró á náttfötunum Nýjum myndum hefur verið dreift af hinum aldna forseta, þar sem hann sést m.a. lesa dagblöð. MYND/AP

 "Ögurstundin er að baki," segir Fídel Kastró í nýrri yfirlýsingu sem kúbverska blaðið Granma birti í gær. Vegna aðgerðar í júlímánuði sá forsetinn sig knúinn til að fela bróður sínum stjórnartaumana og hefur enn ekki tekið við völdum á nýjan leik.

Kastró sagðist vera "hlýðinn sjúklingur" á hægum batavegi og átján kílóum léttari. Einnig að þrátt fyrir veikindin ætlaði hann brátt að taka á móti erlendum gestum og vísaði þar líklega til NAM-fundarins, sem haldinn verður á Kúbu innan tíðar, en það er fundur 116 ríkja sem standa að mestu utan hernaðarbandalaga.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×