Erlent

Græna hvelfingin opnuð á ný

Gersemar skoðaðar Angela Merkel, kanslari Þýskalands, skoðar dýrgripi í Grænu hvelfingunni í Dresden.
Gersemar skoðaðar Angela Merkel, kanslari Þýskalands, skoðar dýrgripi í Grænu hvelfingunni í Dresden. MYND/AP

Græna hvelfingin, sögufræg salarkynni í höll í Dresden sem geymdu rómað safn gersema frá barokktímanum, hefur verið opnað á ný, rúmlega sextíu árum eftir eyðileggingu heimsstyrjaldarinnar síðari. Gersemarnar varðveittust flestar þótt höllin hafi verið lögð í rúst, enda var þeim komið fyrir á öruggum stað á stríðsárunum.

Endurbygging salarkynnanna kostaði um 45 milljónir evra, andvirði yfir fjögurra milljarða króna. Um 3.000 fornir listmunir eru á sýningunni. Safnið var á sínum tíma stofnað af Ágúst II "hinum sterka", sem var konungur Saxlands og Póllands og mikill fagurkeri. Hann dó árið 1733.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×