Innlent

Skúta strandar við Akurey

skútan í höfn Stýri skútunnar brotnaði þegar hún tók niðri við Akurey. Hún var dregin til hafnar stuttu eftir strandið í gær.
skútan í höfn Stýri skútunnar brotnaði þegar hún tók niðri við Akurey. Hún var dregin til hafnar stuttu eftir strandið í gær.

Skúta strandaði við Akurey um hádegisbilið í gær. Stýri skútunnar, sem er frönsk, brotnaði þegar hún tók niðri við eyjuna og var björgunarbátur björgunarsveitarinnar Ársæls í Reykjavík sendur á vettvang.

Björgunarmenn komu línu í skútuna og héldu henni til að koma í veg fyrir að verr færi. Ekki var um lífshættu að ræða að sögn Slysavarnarfélagsins Landsbjargar.

Þegar skútan strandaði var háfjara en þrátt fyrir það náði björgunarskipið Ásgrímur S. Björnsson að fara með hana til hafnar þar sem hún er nú.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×