Sport

Við þorum ekki að lofa neinu

Bygging nýja Wembley gengur hægt.
Bygging nýja Wembley gengur hægt. nordicphotos/AFp

Yfirmenn á Wembley þora ekki að lofa því að nýji leikvangurinn verði orðinn fullbúinn fyrir úrslitaleik FA bikarsins í Englandi 2007. Upphaflega átti að vera hægt að leika á vellinum þegar úrslitaleikur keppninnar milli West Ham og Liverpool fór fram fyrir stuttu síðan.



„Við viljum ekki tilgreina neinn sérstakan dag eins og staðan er núna. Við þurfum ekkert að drífa okkur þar sem bikarúrslitaleikirnir hafa átt mjög gott heimili í Cardiff meðan framkvæmdir hafa staðið yfir. Það sem er mikilvægast er að völlurinn verði eins góður og hægt er fyrir þennan pening,“ sagði Michael Cunnah sem er yfir framkvæmdunum.



Það sem hefur meðal annars tafið framkvæmdir er að skipt hefur verið um aðferðir og tæki við bygginguna sem er í höndum ástralska verktakafyrirtækisins Multiplex. Vegna þess að byggingin er svona á eftir áætlun hefur þurft að fresta mörgum viðburðum sem fyrirhugað var að hada á leikvangnum, þar á meðal landsleikjum hjá enska landsliðinu og tónleikum með Rolling Stones og Robbie Williams.



Einnig kom upp hneykslismál varðandi byggingu vallarins þegar upp komst um fjölmarga aðila sem voru að vinna við byggingu hans sem veðjuðu um að hann yrði ekki tilbúinn á áætluðum tíma. Vonast er til að leikvangurinn muni opna í janúar eða febrúar á næsta ári en verktakafyrirtækið vill engu lofa. Fullkláraður mun völlurinn taka 90 þúsund manns í sæti og verður hann mjög nútímalegur og útbúinn allskonar þjónustu fyrir áhorfendur sem heimsækja völlinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×