Sport

Við vorum óheppnir

Martin Jol
Martin Jol NordicPhotos/GettyImages

Martin Jol, stjóri Tottenham var ekki sáttur við að missa leikinn gegn West Ham niður í jafntefli á síðustu andartökunum í dag, en liðin skildu jöfn á White Hart Lane 1-1.

"Við vorum ekki beint heppnir í dag, þetta var ekki okkar dagur, en ég er þó ekki frá því að West Ham hafi átt skilið að fá eitthvað út úr þessum leik. Ég er ekki sáttur við þessi úrslit, því við verðum að vinna heimaleikina okkar. Við vorum betri í fyrri hálfleiknum, en sköpuðum okkur ekki nægilega mörg færi í þeim síðari," sagði Jol.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×