Sport

Barcelona á siglingu

NordicPhotos/GettyImages

Spánarmeistarar Barcelona unnu fjórða leik sinn í röð í deildinni í gær þegar liðið lagði Getafe 3-1 á útivelli. Þetta var fyrsta tap Getafe á heimavelli í ellefu mánuði. Samuel Eto´o, Ludovic Guily og Thiago Motta skoruðu mörk Barcelona. Real Madrid vann nauman sigur á Zaragoza með marki Roberto Carlos úr víti.

Osasuna er enn í efsta sæti spænsku deildarinnar með 24 stig en Barcelona er í öðru með 22 og Real Madrid í sætinu þar fyrir neðan með 21 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×