Sport

Gerði fimm ára samning við West Ham

NordicPhotos/GettyImages

Alan Pardew er í skýjunum yfir því að hafa undirritað nýjan fimm ára samning við West Ham, en hann hefur stýrt liðinu í tvö ár og kom því nokkuð óvænt upp í úrvalsdeildina í vor. Byrjun liðsins í úrvalsdeild hefur svo farið fram úr björtustu vonum og því hefur Pardew nú skrifað undir nýjan samning.

"Ég er mjög ánægður með að hafa skrifað undir nýjan samning og mig langar að þakka stjórninni, starfsfólkinu og auðvitað stuðningsmönnunum fyrir það traust sem mér hefur verið sýnt á síðustu tveimur árum," sagði Pardew.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×