Sport

Romanov tekur til í herbúðum félagsins

Tveir æðstu menn í stjórn knattspyrnuliðsins Hearts í skosku úrvalsdeildinni eru farnir frá félaginu. Vladimir Romanov, nýr eigandi liðsins, hefur heldur betur látið til sín taka og rak í dag Phil Anderton, yfirmann knattspyrnumála. Í kjölfarið ákvað George Foulkes að segja af sér í mótmælaskyni og því hafa þrír menn verið flæmdir frá félaginu á nokkrum dögum.

Roman Romanov, sonur Vladimir, hefur verið skipaður æðsti maður í stjórn félagsins þar til eigandanum tekst að finna menn í stöðurnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×