Innlent

Ógnaði starfsmönnum með sprautunál

Ungur maður, sem rændi peningum úr peningakassa Dominos við Skúlagötu í gærkvöldi, er enn ófundinn. Talið er að hann sé 15 til 18 ára gamall. Hann ógnaði starfsmönnum með notaðri sprautunál og náði að hafa nokkur þúsund krónur á brott með sér. Hann lagði ekki til afgreiðslumannanna með nálinni þar sem þeir fóru að fyrirmælum hans.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×