Innlent

Mikil­vægt að and­lát Hjalta yrði ein­hverjum til gagns

Bjarki Sigurðsson skrifar
Heiður Hjaltadóttir, móðir Hjalta Þórs Ísleifssonar.
Heiður Hjaltadóttir, móðir Hjalta Þórs Ísleifssonar. Vísir/RAX

Fyrstu styrkirnir úr minningarsjóði Hjalta Þórs Ísleifssonar voru veittir í dag. Móðir Hjalta segir það hafa verið sér mikilvægt að andlát hans yrði einhverjum til gagns. Fallegt hafi verið að heyra vini og kollega minnast Hjalta við afhendinguna.

Hjalti Þór var í doktorsnámi í Sviss þar sem hann fannst látinn á heimili sínu í desember 2023 eftir að hafa svipt sig lífi. Hann var 27 ára og kom andlát hans fjölskyldu og vinum algjörlega í opna skjöldu.

„Bara strax einum tveimur dögum seinna, fékk ég þá flugu í höfuðið að þessi dauði yrði að vera einhverjum til gagns. Og mér fannst mjög mikilvægt að við myndum búa til sjóð og minnast hans. Nota pening úr sjóðnum til þess að styrkja efnilega stærðfræðinema til frekara náms,“ segir Heiður Hjaltadóttir, móðir Hjalta Þórs.

Minningarsjóðurinn styrkti tvo stærðfræðinema til framhaldsnáms í dag. Stærðfræðin átti hug og hjarta Hjalta Þórs.

„Það snerist allt um stærðfræði. Ef það var ekki hægt að reikna það, þá bara var það ekki. Þú fórst ekkert í rökræður við Hjalta. Þú sagðir ekkert af því bara þegar hann var lítill, það bara virkaði ekki. Þú þurftir alltaf að segja nákvæmlega af hverju, hvers vegna og svoleiðis,“ segir Heiður.

Miklu klárari en hún gerði sér grein fyrir

Hjalti Þór var vinamargur og snerti líf flestra sem hann kynntist. Hann vildi alltaf láta gott af sér leiða og bar hag annarra fyrir brjósti. Yfir hundrað manns mættu á athöfnina, fjölskylda, vinir hans úr skóla, fyrrverandi kennarar og samstarfsfélagar.

„Bara hvað hann var ótrúlega klár, miklu miklu klárari en ég sem mamma hans gerði mér grein fyrir. Þetta var bara strákurinn minn og ég vissi alveg að hann væri klár. Eldklár í skóla og allt það en ég vissi ekki að hann væri alveg svona klár. Það er alltaf að koma betur og betur í ljós eftir því sem maður hittir fleiri sem þekktu hann,“ segir Heiður.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×