Innlent

Eldsupptök í Kópavogi enn óljós

Enn er óljóst um eldsupptök þegar mikill eldur kviknaði í iðnaðarhúsnæði við Skemmuveg í Kópavogi í nótt og slökkviliðsmenn þurftu að leggja sig í hættu við að ráða niðurlögum hans. Gríðarlegur hiti mætti reykköfurum slökkviliðsins þegar þeir héldu inn í húsið um klukkan hálffjögurleytið í nótt þar sem eldur logaði innst í húsnæðinu. Þá urðu sprengingar þegar málningarílát og lítill gaskútur sprungu en engan slökkviliðsmann sakaði og tókst þeim að slökkva eldinn þegar þeir komust loks að honum. Slökkvistarfið tók rúmar tvær klukkustundir. Talið er að hiti upp undir lofti húsnæðisins hafi verið á milli 600 og 1000 gráður og var vatnið úr brunaslöngunum um 40 stiga heitt á gólfi hússins þega slökkvistarfi lauk, eða álíka og í heitupottunum í laugunum. Verulegt tjón varð á verðmætum í húsnæðinu þar sem byggingaverktaki geymir ýmsan búnað og vörur og á bílaverkstæði á efri hæð sem fylltist af reyk. Reykurinn sást víða að og fanst reykjarlykt víða á höfuðborgarsvæðinu. Eldsupptök eru ókunn, sem fyrr segir, og er ekki vitað um mannaferðir í húsinu síðan fyrir páska. Þá varð talsvert tjón í fjölbýlishúsi í Árbæjarhverfi í gærkvöldi þegar kveikt var í þvotti í þvottahúsi þar, og reykur barst upp allan stigaganginn. Brennuvargurinn er ófundinn.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×