Innlent

Fjór­tán hlutu fálka­orðuna á nýárs­degi

Atli Ísleifsson skrifar
Brian Pilkington, Glódís Perla Viggósdóttir og Þórir Hergeirsson eru í hópi nýrra fálkaorðuhafa.
Brian Pilkington, Glódís Perla Viggósdóttir og Þórir Hergeirsson eru í hópi nýrra fálkaorðuhafa.

Fjórtán Íslendingar – sjö karlar og sjö konur – voru sæmd heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu á Bessastöðum í dag.

Hin íslenska fálkaorða er íslensk heiðursviðurkenning sem veitt er einstaklingum, bæði íslenskum og erlendum, en forseti Íslands sæmir íslenska ríkisborgara fálkaorðunni tvisvar á ári, 1. janúar og 17. júní.

Nýir fálkaorðuhafar með Höllu Tómasdóttur forseta á Bessastöðum í dag.Vísir/Elín

Að neðan má sjá lista yfir þau sem voru sæmd fálkaorðunni fyrr í dag:

  • Bala Murughan Kamallakharan, frumkvöðull og framkvæmdastjóri, fyrir störf í þágu íslenskra nýsköpunarfyrirtækja
  • Brian Pilkington myndlistarmaður fyrir framlag til myndskreytinga og barnabókmennta
  • Edvarð Júlíus Sólnes, prófessor emeritus í umhverfis- og byggingarverkfræði, fyrir brautryðjendastörf á sviði jarðskjálftavarna og umhverfisverndar
  • Geirlaug Þorvaldsdóttir hóteleigandi fyrir framlag til ferðaþjónustu, menningar og varðveislu íslenskrar myndlistar
  • Glódís Perla Viggósdóttir knattspyrnukona fyrir afreksárangur í knattspyrnu
  • Íris Inga Grönfeldt íþróttafræðingur fyrir framlag til íþrótta og heilsueflingar barna, unglinga og fullorðinna í heimabyggð
  • Jón Þór Hannesson framleiðandi, hljóðmeistari og kvikmyndagerðarmaður fyrir brautryðjendastarf í kvikmyndagerð
  • Jónas Karl Þorvaldsson, sviðsstjóri hjá Landhelgisgæslunni, fyrir framlag til friðargæslustarfa og öryggismála 
  • Kristín Jóhannsdóttir safnstjóri fyrir frumkvöðlastarf í þágu menningar- og ferðamála í heimsbyggð 
  • Magnea Jóhanna Matthíasdóttir, rithöfundur og þýðandi, fyrir framlag til þýðinga og ritstarfa 
  • Sigurþóra Bergsdóttir framkvæmdastjóri fyrir að skapa úrræði sem bætir aðgengi að stuðningi og ráðgjöf fyrir ungt fólk á Íslandi 
  • Sólveig Þorsteinsdóttir, bókasafns- og upplýsingafræðingur, fyrir brautryðjandastörf við upbbyggingu bókasafna og landsaðgengis að rafrænum gagnaveitum 
  • Þorsteinn Tómasson plöntuerfðafræðingur fyrir framlag til plöntukynbóta í þágu landbúnaðar, skógræktar, garðyrkju og líftækniiðnaðar 
  • Þórir Hergeirsson handboltaþjálfari fyrir afreksferil í þjálfun og framlag til handbolta kvenna

Í orðunefnd embættis forseta Íslands eiga nú sæti:

  • Kristín Ingólfsdóttir, fv. háskólarektor, formaður
  • Bogi Ágústsson fréttamaður
  • Drífa Hjartardóttir, fv. alþingismaður
  • Sigurbjörn Árni Arngrímsson skólameistari
  • Sigríður Snævarr, fv. sendiherra

Tengdar fréttir

Sæmdur fálkaorðu fyrir endurreisn safns Samúels Jónssonar

Forseti Íslands sæmdi í gær þýska myndlistarmanninn Gerhard König riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu fyrir störf hans í þágu varðveislu íslenskrar menningarsögu. Gerhard er frá Þýskalandi og hefur í yfir aldarfjórðung unnið að endurreisn listasafns Samúels Jónssonar í Selárdal í Arnarfirði.

Sex­tán sæmdir heiðurs­merki hinnar ís­lensku fálka­orðu

Forseti Íslands Guðni Th. Jóhannesson, sæmdi 16 Íslendinga heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu við hátíðlega athöfn á Bessastöðum í dag, 17. júní 2024. Þetta er jafnframt síðasta fálkaorðuafhending Guðna, sem lætur af störfum sem forseti 1. ágúst næstkomandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×