Innlent

Stakk lögregluna af með ofsaakstri

Maður sem stal bifreið meðan hún var í gangi fyrir utan bensínstöð í Breiðholti um klukkan ellefu í gærkvöldi olli gríðarlegri hættu með ofsaakstri þegar lögreglan veitti honum eftirför. Maðurinn stakk lögregluna af og er hans og bifreiðarinnar enn leitað. Hann ók á ofsahraða í gegnum Seljahverfi í Breiðholti og hefði ekki þurft að spyrja að leikslokum, hefði umferð verið mikil. Hann olli einhverju tjóni að sögn lögreglunnar.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×