Innlent

Skilorð fyrir kynferðisbrot

Hæstiréttur staðfesti dóm Héraðsdóms Vesturlands yfir pilti sem dæmdur var í sex mánaða skilorðbundið fangelsi fyrir tvö kynferðisbrot gegn þrettán ára stúlku. Pilturinn var sjálfur rúmum þremur árum eldri en stúlkan þegar brotin áttu sér stað. Þótti dómnum nægjanlega sannað að pilturinn hefði gerst brotlegur gegn stúlkunni þar sem honum átti að hafa verið ljóst að stúlkan væri aðeins þrettán ára gömul. Bótakröfu var vísað frá í héraði þar sem kröfunni hefði átt að beina að lögráðmanni piltsins þar sem hann var sjálfu ólögráða.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×