Innlent

Sviðsetti umferðarslys

Hæstiréttur staðfesti fimm mánaða fangelsisdóm Héraðsdóms Austurlands, yfir manni, fyrir að hafa sett á svið umferðarslys í því skyni að svíkja út tryggingabætur. Umferðaslysið setti maðurinn á svið í Vattarnesskriðum á milli Fáskrúðsfjarðar og Reyðarfjarðar þar sem hann lét bifreið renna niður bratta fjallshlíð þannig að hún stórskemmdist. Ekki var talið að það ylli vanhæfi að annar hinna sérfróðu meðdómenda í héraðsdómi hafi fyrir rúmum áratug, þegar hann var skólastjóri í framhaldsskóla, rekið manninn úr skólanum sökum áfengisneyslu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×