Innlent

Neyðarboð í búðarleik

Menn frá Securitas höfðu samband við lögregluna á Selfossi út af neyðarboði sem kom frá pósthúsinu á Eyrarbakka. Ekkert pósthús er hins vegar á Eyrarbakka lengur heldur er neyðarhnappurinn enn virkur í húsinu sem áður var pósthúsið en er nú íbúðarhús. Að sögn varðstjóra á Selfossi voru það börn í búðarleik sem komu neyðarboðinu af stað þegar þau notuðu hnappinn við leik sinn.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×