Innlent

Bíll fauk út af

Mikið hvassviðri gerði fólki erfitt með að ferðast á milli staða á Höfn í Hornafirði í gær að sögn lögreglunnar. Ökumaður bíls sem fauk út af veginum við Almannaskarð í gær slapp án meiðsla. Bíllinn er hins vegar mikið skemmdur ef ekki ónýtur. Stór vinnuvélaskemma gerð úr segldúk og stálgrindum skemmdist í hvassviðrinu þegar seglið fauk af í heilu lagi. Þeir sem vinna við jarðgangagerð í Almannaskarði notuðu skemmuna undir vinnuvélar.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×