Innlent

Sýknaður af kynferðisbroti

Maður var sýknaður í Héraðsdómi Norðurlands eystra af ákæru um kynferðisbrot. Maðurinn var ákærður fyrir að hafa í janúar haft samfarir við konu þegar ástand hennar var þannig að hún gat ekki spornað við verknaðinum sökum ölvunar og svefndrunga. Dómnum þótti leika vafi á að um saknæma hegðun hafi verið að ræða. Maðurinn játar að hafa haft samfarir við konuna en segist hafa talið þær hafa verið með fullum vilja og þátttöku konunnar. Kona telur samfarirnar hins vegar hafa átt sér stað eftir að hún hafi sofnað en hún hafi áður neitað að eiga við hann samræði.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×