Erlent
257 258 259 260 261 262 263 264 265 … 334 ›
Jones gert að greiða fjölskyldu drengs sem drepinn var í Sandy Hook 4,1 milljón Alex Jones þarf að greiða minnst 4,1 milljón bandaríkjadala til fjölskyldu sex ára drengs sem var drepinn í skotárásinni í Sandy Hook grunnskólanum vegna þeirrar þjáningar sem hann, og fjölmiðill hans Infowars, olli fjölskyldunni með því að dreifa lygum um ódæðið. Erlent 4.8.2022 23:56
Fjögur ákærð vegna máls Breonna Taylor Bandaríska alríkislögreglan hefur handtekið og ákært fjóra nú- og fyrrverandi lögregluþjóna í Louisville í Kentucky vegna máls sjúkraliðans Breonna Taylor. Taylor var skotin til bana af lögregluþjónum sem brutust inn á heimili hennar árið 2020. Hún var aðeins 26 ára gömul. Erlent 4.8.2022 16:00
Lokun þýskra kjarnorkuvera óljós vegna skorts á gasi Kanslari Þýskalands Olaf Scholz segir það geta hugsast að gott væri að halda starfsemi þýskra kjarnorkuvera gangandi í ljósi rýrnunar á gasflæði frá Rússlandi. Erlent 4.8.2022 14:07
Fjölskylda Assange vill að stjórnvöld í Ástralíu setji Bandaríkjunum afarkosti Fjölskylda Julian Assange, stofnanda Wikileaks, segir það jafngilda dauðadómi ef Assange verður framseldur frá Bretlandi til Bandaríkjanna. John Shipton, faðir Assange, og bróðir hans Gabriel Shipton, hafa freistað þess að fá stjórnvöld í Ástralíu, heimalandi Assange, til að grípa inn í en segjast ekki hafa fengið fund með forsætisráðherranum Anthony Albanese. Erlent 4.8.2022 09:33
Öldungadeildin samþykkir aðild Svía og Finna Allir þingmenn öldungadeildar bandaríska þingsins nema einn samþykktu í gær aðild Svía og Finna að Atlantshafsbandalaginu. Mitch McConnell, leiðtogi repúblikana, sagði aðild ríkjanna myndu efla Nató og auka öryggi Bandaríkjanna. Erlent 4.8.2022 07:40
Kínverjar hefja heræfingar umhverfis Taívan Ríkismiðlar í Kína hafa greint frá því að umfangsmiklar heræfingar kínverska hersins umhverfis Taívan séu hafnar. Æfingarnar eru sagðar fara fram á sex svæðum umhverfis eyjuna og hafa tilmæli verið send út um að flugvélar og skip forðist svæðin á meðan þær standa yfir. Erlent 4.8.2022 06:53
„Þú veist hvað meinsæri er, er það ekki?“ Samsæringurinn Alex Jones viðurkenndi í dómsal í dag að það hefði verið óábyrgt af honum að halda því fram að skotárásin í Sandy Hook hefði verið sviðsett. Hann viðurkenndi að árásin væri „hundrað prósent raunveruleg“. Þá kom í ljós í dag að lögmaður hans sendi fyrir mistök mikið magn gagna til lögmanna foreldra sem hafa höfðað mál gegn honum. Erlent 3.8.2022 22:48
Rándýrt að skoða Komododreka og starfsmenn farnir í verkfall Kostnaður við að ferðast á tvær eyjur sem eru heimkynni Komododrekans átjánfaldaðist um mánaðamót júlí og ágúst. Ferðamenn þurfa nú að borga 3,75 milljónir indónesískra rúpía til að fá aðgang að eyjunni, tæpar 35 þúsund íslenskar krónur. Erlent 3.8.2022 11:29
Túrbínan sé tilbúin fyrir flutning til Rússlands Kanslari Þýskalands, Olaf Scholz mun í dag skoða rússneska túrbínu frá Gazprom sem hefur valdið miklum flækjum fyrir gasflutning í gegnum Nord Stream 1 gasleiðsluna. Túrbínan er staðsett í borginni Mulheim í Þýskalandi. Erlent 3.8.2022 08:31
Ríkur tannlæknir dæmdur fyrir að bana eiginkonunni með haglabyssu í veiðiferð Auðugur bandarískur tannlæknir sem sakaður var um að hafa skotið eiginkonu sína til bana með haglabyssu í veiðileiðangri í Afríku var í gær sakfelldur fyrir morð og póstsvik. Hinn 67 ára Lawrence Rudolph var ákærður fyrir að hafa myrt Bianca Rudolph í Sambíu árið 2016 og brotið lög þegar hann leysti út 4,8 milljónir bandaríkjadala út úr líftryggingunni hennar. Erlent 3.8.2022 08:01
Ítrekaði stuðning Bandaríkjanna við Taívan og skaut á forseta Kína Nancy Pelosi, forseti fulltrúadeildar bandaríska þingsins, hét áframhaldandi stuðningi Bandaríkjanna við Taívan í opinberri heimsókn sinni þar í gær. Pelosi fundaði meðal annars með Tsai Ing-wen, forseta Taívan, sem hét því að láta ekki undan hernaðarlegum hótunum Kína. Erlent 3.8.2022 07:35
Íbúar Kansas standa vörð um rétt kvenna til þungunarrofs Íbúar í Kansas í Bandaríkjunum höfnuðu því í atkvæðagreiðslu í gær að fjarlægja ákvæði úr stjórnarskrá ríkisins þar sem konum er tryggður rétturinn til þungunarrofs. Erlent 3.8.2022 06:41
Pelosi lent í Taívan og kínverskum orustuþotum flogið inn í loftvarnarsvæði þeirra Nancy Pelosi, forseti fulltrúadeildar Bandaríkjaþings, lenti í Taívan síðdegis í dag þrátt fyrir mikla andstöðu Kínverja. Talið er að heimsóknin gæti aukið verulega á spennu á milli stórveldanna tveggja. Erlent 2.8.2022 18:10
Meira en áttatíu menn sakaðir um að hópnauðga átta konum Meira en áttatíu menn ásakaðir um að hópnauðga átta konum komu fyrir dómara í Krugersdorp í Suður-Afríku í gær. Mennirnir réðust á tökulið sem var að taka upp tónlistarmyndband í yfirgefinni námu í Krugersdorp, nauðguðu konum hópsins og rændu fólkið öllum verðmætum. Erlent 2.8.2022 12:09
Tveir myrtir í Otta í Noregi Tveir voru myrtir í Otta í Noregi í gærkvöldi en lögreglurannsókn stendur yfir þar núna. Árásarmaðurinn sem stakk tvo til bana hringdi sjálfur í lögregluna um kvöldmatarleytið og var handtekinn þegar lögreglan kom á staðinn. Erlent 2.8.2022 10:04
Kínverjar æfir yfir heimsókn Pelosi til Taívan Nancy Pelosi, forseti fulltrúadeildar bandaríska þingsins, er væntanleg til Taívan í dag. Kínversk stjórnvöld hafa brugðist illa við fyrirhugaðri heimsókn og sendiherra Kína í Bandaríkjunum meðal annars sagt að Kínverjar muni ekki sitja aðgerðalausir hjá. Erlent 2.8.2022 07:57
Leiðtogi Al-Kaída drepinn í árás Bandaríkjamanna Bandarísk stjórnvöld greindu frá því í gær að Ayman al-Zawahiri, leiðtogi Al Kaída, hefði fallið í árásum Bandaríkjamanna á aðsetur leiðtogans í Kabúl. Al-Zawahiri er sagður hafa verið einn af forsprökkum hryðjuverkaárásanna 11. september 2001. Erlent 2.8.2022 07:05
Borgarstjóri segir árásir á sjúkrahús viðurstyggileg hryðjuverk Borgarstjóri úkraínsku borgarinnar Mykolaiv segir árásir Rússa á spítala í borginni fyrr í dag viðurstyggileg hryðjuverk. Erlent 1.8.2022 21:46
Saksóknarinn sem fór í stríð við mafíuna Yfir 350 manns sitja nú á sakamannabekk í einum stærstu réttarhöldum sem ráðist hefur verið í gegn meðlimum ítölsku mafíunnar. Þetta má aðallega þakka einum saksóknara, sem undrast það verulega að hann skuli enn vera á lífi. Erlent 1.8.2022 14:30
Ógnarmiklir skógareldar í Kaliforníu Ógnarmiklir skógareldar loga nú í Kaliforníuríki í Bandaríkjunum. Tvö þúsund manns hafa verið gert að yfirgefa heimili sín og slökkvilið hefur áhyggjur af þrumuveðri sem er í kortunum. Eldarnir eru þeir mestu í ríkinu á þessu ári. Erlent 1.8.2022 10:21
Yfir 50 þúsund saman komin á Íslendingadeginum Yfir fimmtíu þúsund eru saman komin á Íslendingadeginum í Kanada. Hátíðin, sem stendur yfir í nokkra daga, hefur verið haldin árlega frá árinu 1890 og fer fram í Gimli, en henni er ætlað að viðhalda sambandi Íslendinga og fólks af íslenskum uppruna í Kanada. Erlent 1.8.2022 10:12
Kornútflutningur hafinn: Fyrsta skipið siglir úr höfn Kornútflutningur frá Odessa er hafinn en fyrsta skipið sigldi úr höfn í morgun með rúm 26.500 tonn af korni innanborðs. Um tuttugu milljónir tonna bíða útflutnings frá Úkraínu en skipið er það fyrsta sem siglir frá hafnarborginni síðan 26. febrúar. Erlent 1.8.2022 08:49
Skattsvikamál Shakiru fyrir dóm á Spáni Kólumbísku poppstjörnunni Shakiru hefur mistekist að ná dómsátt með spænskum saksóknurum og mun mál hennar vegna meintra skattsvika því fara fyrir dómstóla. Shakira mun þar halda fram sakleysi sínu. Erlent 31.7.2022 16:30
Hótar að bregðast við á leifturhraða „Rússneski sjóherinn getur brugðist við á leifturhraða og mætir hverjum þeim sem reynir að ganga á fullveldi og frelsi Rússlands með hörku,“ sagði Vladimír Pútín Rússlandsforseti í ávarpi í Sankti Pétursborg fyrr í dag. Erlent 31.7.2022 13:34
Skotinn til bana í Örebro Karlmaður á þrítugsaldri var skotinn til bana í sænsku borginni Örebro í gærkvöldi. Fjölmennt lögreglulið vinnur að rannsókn málsins en enginn hefur verið handtekinn. Erlent 31.7.2022 08:21
Rauða krossinum meinaður aðgangur að særðum stríðsföngum Stríðsfangelsi í bænum Olenivka í Donetsk-héraði sem er á valdi Rússa varð fyrir loftárás á föstudag með þeim afleiðingum að 53 úkraínskir stríðsfangar létust og 75 særðust. Rauði krossinn segir yfirvöld ekki enn hafa orðið við beiðni samtakanna um að heimsækja fangelsið. Erlent 31.7.2022 00:03
Indiana leggur nær algjört bann við þungunarrofi Lagafrumvarp sem leggur nær algjört bann við þungunarrofi í Indiana-ríki í Bandaríkjunum var samþykkt af þingmönnum ríkisins í dag með lægsta atkvæðafjölda sem þurfti til að hleypa því í gegn. Einungis verði hægt að rjúfa þungun í tilfelli nauðgana eða sifjaspells. Erlent 30.7.2022 21:39
Biden aftur með Covid Joe Biden, Bandaríkjaforseti, mældist aftur jákvæður fyrir Covid-19 í dag. Hann þarf því að fara í fimm daga einangrun að nýju, aðeins þremur dögum eftir að hann fékk neikvætt próf og yfirgaf einangrun. Erlent 30.7.2022 20:27
Vann rúman milljarð Bandaríkjadala í lottói Stakur lottómiði fékk allan vinninginn, 1,337 milljarð Bandaríkjadala, í lottóinu Mega Millions í Bandaríkjunum á föstudag. Miðinn var keyptur á bensínstöð í úthverfi Chicago og fær eigandi hans stóra vinninginn sem er sá þriðji stærsti í sögu Bandaríkjanna. Erlent 30.7.2022 18:00
Handtekinn grunaður um að hafa stungið stúlkuna til bana Tuttugu og tveggja ára gamall karlmaður hefur verið handtekinn grunaður um að hafa stungið níu ára stúlku til bana í miðbæ Boston í Lincolnskíri í Bretlandi í vikunni. Erlent 30.7.2022 16:47