Erlent
199 200 201 202 203 204 205 206 207 … 334 ›
Sendir inn 10.000 hermenn til að svæla út glæpagengi Forseti El Salvadors sendi um 10.000 her- og lögreglumenn til þess að umkringja úthverfi höfuðborgarinnar San Salvador og handtaka félaga í glæpagengjum. Mannréttindasamtök hafa gagnrýnt herför forsetans gegn gengjum landsins. Erlent 4.12.2022 08:44
Fiskveiðisamningur Færeyja og Rússlands sagður smekkleysa Evrópusambandið gagnrýnir nýjar fiskveiðisamning Færeyja og Rússlands. Þingmaður Dana á Evrópuþinginu segir samninginn smekklausan. Erlent 3.12.2022 17:05
Evrópa of háð Bandaríkjunum í öryggismálum Innrás Rússa í Úkraínu sýnir að Evrópulönd séu of háð Bandaríkjunum um eigið öryggi, að mati Sönnu Marin, forsætisráðherra Finnlands. Hún vill að Evrópulönd auki vopnaframleiðslu og varnarviðbúnað sinn. Erlent 3.12.2022 09:01
Fylgdust með skýjafari á Títani með hjálp Webb Langþráðar myndir James Webb-geimsjónaukans af Títani, stærsta tungli Satúrnusar, gerðu stjörnufræðingum kleift að fylgjast með þróun skýja í lofthjúpi hans í síðasta mánuði. Athugarnirnar eru í samræmi við loftslagslíkön sem spáðu fyrir um að ský gætu hæglega myndast á þessum tíma árs. Erlent 2.12.2022 22:00
Bein útsending: Opinbera fyrstu nýju sprengjuvélina í þrjátíu ár Flugher Bandaríkjanna ætlar að opinbera nýja kynslóð huldusprengjuvéla í næstu viku en þær eru meðal annars hannaðar til að bera kjarnorkuvopn. Sprengjuvélarnar kallast B-21 Raider og eiga að leysa hinar víðþekktu vélar B-2 Spirit af hólmi. Erlent 2.12.2022 21:00
Snowden sór Rússlandi hollustueið Edward Snowden, sem ljóstraði um um stórfelldar njósnir bandarísku þjóðaröryggisstofnunarinnar, sór Rússlandi hollustueið og fékk rússneskt vegabréf í dag, að sögn lögmanns hans. Rússar veittu Snowden hæli eftir að hann flúði Bandaríkin í kjölfar uppljóstrananna. Erlent 2.12.2022 15:09
Lýsir yfir gjaldþroti í kjölfar skaðabótadóma Samsæringasmiðurinn umdeildi Alex Jones hefur lýst yfir gjaldþroti. Hann var nýlega dæmdur til að greiða aðstandendum fórnarlamba skotárásarinnar í Sandy Hook árið 2012 nærri því einn og hálfan milljarð dala í skaðabætur. Erlent 2.12.2022 14:38
Vilja banna kynlíf utan hjónabands og móðganir gegn stjórnvöldum Borgararéttindi í Indónesíu verða skert með frumvarpi til hegningarlaga sem þingið þar er við það að samþykkja, að mati mannréttindasamtaka. Frumvarpið legði bann við kynlífi fyrir hjónaband og að móðga forseta landsins eða stofnanir ríkisins. Erlent 2.12.2022 14:23
Segjast ætla að draga Rússa til ábyrgðar Forsetar bandaríkjanna og Frakklands sögðust á blaðamannafundi í gær ætla að draga Rússa til ábyrgðar fyrir stríðsglæpi og önnur ódæði þeirra í Úkraínu. Joe Biden sagðist tilbúinn til viðræðna við Vladimír Pútín, forseta Rússlands, en eingöngu ef Pútín væri að leita leiða til að binda enda á innrásina í Úkraínu. Erlent 2.12.2022 13:40
Hádegisfréttir Bylgjunnar Fjárhagur Reykjavíkurborgar, kjaraviðræður og þriðja vaktin svokallaða er á meðal þess sem fjallað verður um í hádegisfréttum Bylgjunnar. Erlent 2.12.2022 11:37
Dómarar veita Trump enn eitt höggið Áfrýjunardómstóll hefur úrskurðað gegn Donald Trump, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, í dómsmálinu gegn honum vegna leynilegu skjalanna í Mar-a-Lago. Þrír alríkisdómarar sem skipa áfrýjunardómstólinn gagnrýndu einnig dómara sem úrskurðaði áður Trump í vil en sá dómari var skipaður í embætti af Trump. Erlent 2.12.2022 11:24
Bréfsprengjurnar taldar heimagerðar og sendar innan Spánar Spænska lögreglan telur að sex bréfsprengjur sem hafa fundist undanfarna tvo sólarhringa hafi verið heimasmíðaðar. Bréfin eru sögð hafa innihaldið lítið magn af púðri og sprengjubrotum og verið send innan Spánar. Erlent 2.12.2022 09:00
„Án Bandaríkjanna værum við í vanda“ Sanna Marin, forsætisráðherra Finnlands, hefur kallað eftir því að Evrópuríkin efli varnargetu sína í kjölfar átakanna í Úkraínu. Hún segir styrk Evrópu ónógan án Bandaríkjanna. Erlent 2.12.2022 08:06
New York og Singapore dýrustu borgir heims Framfærslukostnaður í helstu borgum heims hefur hækkað um 8,1 prósent á milli ára að meðaltali ef marka má nýja könnun Economist Intelligence Unit sem árlega birtir lista yfir framfærslukostnað í 172 borgum víðsvegar um heiminn. Erlent 2.12.2022 07:41
„Það er margt sem ég elska við Hitler“ Tónlistarmaðurinn Ye, áður Kanye West, hefur aftur verið bannaður á Twitter eftir að hafa deilt mynd af lógói þar sem Davíðsstjörnunni og hakakrossinum hefur verið blandað saman. Erlent 2.12.2022 07:23
Mætir mótspyrnu innan eigin flokks Kevin McCarthy, leiðtogi Repúblikanaflokksins í fulltrúadeild Bandaríkjaþings, stendur frammi fyrir óvæntri mótspyrnu innan flokksins í tilraunum hans til að tryggja sér embætti forseta fulltrúadeildarinnar. Þingmenn flokksins hafa sagt að til greina komi að gera samkomulag við Demókrata um að kjósa þingforseta sem falli í kramið hjá þeim. Erlent 1.12.2022 16:02
Upplifði spurningar hirðdömunnar sem ofbeldi Kona sem fyrrverandi hirðdama Elísabetar heitinnar Bretadrottningar spurði ítrekað hver uppruni hennar væri á viðburði í Buckingham höll í vikunni segist hafa upplifað atvikið sem ofbeldi og líkir samskiptunum við yfirheyrslu. Hirðdaman steig til hliðar í gær og konungsfjölskyldan segir málið óásættanlegt. Erlent 1.12.2022 15:56
Forseti Suður-Afríku í bobba vegna spillingarásakana Kallað var eftir afsögn Cyrils Ramaphosa, forseta Suður-Afríku, eftir að þingnefnd komst að þeirri niðurstöðu að hann hafi mögulega framið lögbrot í tengslum við fyrirtæki í eigu hans. Forsetinn hafnar ásökununum. Erlent 1.12.2022 15:33
Sprengifimt efni sent forsætisráðherra Spánar Innanríkisráðuneyti Spánar upplýsti í dag að sprengifimt efni hefði verið sent til Pedro Sánchez, forsætisráðherra, í síðustu viku. Fréttirnar koma í kjölfar þess að í það minnsta fjögur önnur slík bréf hafa borist stofnunum og fyrirtækjum síðasta sólarhringinn. Erlent 1.12.2022 11:53
Rýnt í upphaf innrásarinnar: Rússar komust nær sigri en flestir átta sig á Þótt eldflaugar eins og Javelin og NLAW, sem hannaðar eru til að granda skriðdrekum, nytu mikillar athygli og bakhjarlar Úkraínu sendu slík vopn þangað í massavís, var það hið hefðbundna stórskotalið sem gerði Úkraínumönnum kleift að verja Kænugarð í upphafi innrásar Rússa í febrúar og mars. Um tíma voru tólf rússneskir hermenn á móti hverjum úkraínskum hermanni á svæðinu. Erlent 1.12.2022 11:49
Þrjár bréfsprengjur á Spáni á einum sólarhring Bréfsprengjur hafa verið sendar á þrjá staði á Spáni síðasta sólarhringinn, nú síðast til herflugvallar þaðan sem fylgst er með gervihnöttum. Starfsmaður úkraínska sendiráðsins í Madrid særðist lítillega þegar bréfsprengja sprakk þar í gær. Erlent 1.12.2022 08:55
Dómari ógildir réttarhöldin yfir Masterson Dómari ógilti réttarhöld yfir leikaranum Danny Masterson í gær, þar sem kviðdómurinn gat ekki náð saman um niðurstöðu. Masterson var ákærður fyrir þrjár nauðganir og hefur notið stuðnings Vísindakirkjunnar í baráttu sinni gegn ásökununum. Erlent 1.12.2022 07:35
Sex milljónir án rafmagns á fyrsta degi vetrar Úkraínumenn halda fyrsta vetrardag hátíðlegan í dag, fyrsta desember. Erlent 1.12.2022 07:25
Umdeildur gervihnöttur orðinn eitt bjartasta fyrirbærið á næturhimninum Nýtt bandarískt fjarskiptagervitungl er nú á meðal björtustu fyrirbæranna þar sem það ferðast um næturhimininn en til stendur að senda fleiri en hundrað slík á loft. Stjörnufræðingar óttast að þau muni spilla fyrir athugunum frá jörðu niðri og menga næturhimininn. Erlent 1.12.2022 07:00
Leyfa lögreglu að nota banvæn vélmenni Eftirlitsstjórn borgarinnar San Francisco í Kaliforníu í Bandaríkjunum hefur heimilað lögregluliði borgarinnar að notast við mannskæð vélmenni. Ákvörðunin hefur verið harðlega gagnrýnd af aðgerðarsinnum. Erlent 30.11.2022 23:31
Herinn í viðbragðsstöðu fyrir umfangsmikil verkföll á Bretlandseyjum Hjúkrunarfræðingar, sjúkraliðar og sjúkraflutningamenn eru meðal þeirra sem hafa boðað umfangsmikil verkföll á Bretlandseyjum í desember vegna launamála. Breski herinn hefur verið settur í viðbragðsstöðu vegna málsins. Verkalýðsfélög innan annarra geira hafa sömuleiðis boðað verkfall. Erlent 30.11.2022 17:19
Enn einn leiðtogi ISIS er fallinn Talsmenn Íslamska ríkisins tilkynntu í dag að Abu al-Hasan al-Qurashi, leiðtogi hryðjuverkasamtakanna, væri fallinn. Samtökin fengu um leið nýjan leiðtoga en þeir hafa fallið hver á fætur öðrum frá því sá fyrsti og frægasti, Abu Bakr al-Baghdadi dó. Erlent 30.11.2022 17:03
Fylgdust með risasvartholi gleypa stjörnu á nýjan hátt Stjörnufræðingar náðu að fylgjast með því þegar risasvarthol í fjarlægri vetrarbraut gleypti stjörnu sem hætti sér of nærri fyrr á þessu ári. Rannsóknirnar mörkuðu tímamót því aldrei áður hefur slíkur atburður sést eins langt í burtu og aldrei í sýnilegu ljósi. Erlent 30.11.2022 16:00
Sagðir ætla að þrefalda fjölda kjarnorkuvopna á næstu árum Kínverjar eru að smíða fleiri kjarnorkusprengjur og gera fleiri tilraunir með langdrægar eldflaugar en öll önnur ríki heimsins samanlagt. Á næstu árum gæti kjarnorkuvopnabúr Kínverja meira en þrefaldast í umfangi. Erlent 30.11.2022 15:40
Starfsmaður sendiráðs Úkraínu særður eftir bréfsprengju Einn starfsmaður úkraínska sendiráðsins í Madrid, höfuðborg Spánar, er sagður særður eftir bréfsprengja sprakk þar um miðjan dag. Lögreglan virkjaði viðbúnað vegna hryðjuverka og sprengjusérfræðingar voru sendir á staðinn. Erlent 30.11.2022 13:54