Fréttir
66 67 68 69 70 71 72 73 74 … 334 ›
Ekkert gaman að heyra að allt sé að fara til fjandans Ungir umhverfissinnar bjóða á laugardaginn í matarveislu úr rusli og hrekkjavökuhátíð lífvera. Náttúruverndarfulltrúi hjá Ungum umhverfissinnum segir að samtökin vilji gera loftslagsmál heit aftur og draga úr efasemdum. Innlent 31.10.2024 07:03
Frestur til að skila framboðslistum rennur út í dag Frestur til að skila inn framboðslistum til Alþingiskosninga rennur út á slaginu tólf í dag. Í gær bárust þær fréttir frá Landskjörstjórn að búið væri að skila inn 26 listum víðsvegar að af landinu ásamt tilskildum fjölda meðmæla. Innlent 31.10.2024 06:56
Ógnuðu afgreiðslumanni með hníf Tilkynnt var um þjófnað í verslun í miðbæ. Þegar starfsmaður hafi ætlað að ræða við þjófana hafi einn þeirra dregið upp hníf og þeir svo hlaupið burt. Málið er í rannsókn hjá lögreglu en fram kemur í dagbók lögreglu að lögregla telur sig vita hverjir þjófarnir eru. Innlent 31.10.2024 06:43
Halda áfram leit eftir eyðileggingu flóðanna Halda á leit áfram í Valencia á Spáni þar sem hamfaraflóð hófust í fyrradag. Alls eru 95 látin en líklegt er að sú tala eigi eftir að hækka þegar líður á daginn. Mikill fjöldi viðbragðsaðila frá lögreglu, her og björgunarsveitum mun í dag leita að fólki. Tugir eru enn týnd. Erlent 31.10.2024 06:31
Faðir Dags gagnrýnir Kristrúnu: „Dagur veginn og metinn og léttvægur fundinn“ Eggert Gunnarsson, dýralæknir og faðir Dags B. Eggertssonar, hefur látið í ljós óánægju sína með orð Kristrúnar Frostadóttur, formanns Samfylkingarinnar, þess efnis að Dagur sé aukaleikari og ekki ráðherraefni flokksins. Innlent 30.10.2024 23:25
„Ég sé bara íhaldssemi hérna“ Stofnandi Lýðræðisflokksins hafnar því að vera bendlaður við öfgahyggju, og formaður Miðflokksins segir Sjálfstæðisflokkinn vera að færast til vinstri. Þá þykir formanni Viðreisnar fróðlegt að hlusta á málfutning flokkanna sem best megi lýsa sem „Litla- og Stóra-Miðflokki.“ Innlent 30.10.2024 22:00
Skrekkur í lausu lofti vegna verkfalls: „Þetta er út í hött“ „Það eru allir mjög svekktir yfir þessu, enda er þetta einn stærsti viðburður ársins,“ segir Marta Maier 10. bekkingur og formaður nemendaráðs Laugalækjarskóla. Kennarar skólans hófu verkfallsaðsgerðir í dag og ýmislegt er í lausu lofti í vegna þess, svo sem Skrekksviðburður nemenda. Innlent 30.10.2024 21:57
Nágranna Erlu enn saknað: „30 bílar bara í hrúgu hérna fyrir utan hjá mér“ Íslenskur kennari sem býr á því svæði sem fór hvað verst úr hamfaraflóðum sem gengið hafa yfir suðausturhluta Spánar segir að ekki hafi enn spurst til nágranna hennar sem sást síðast í gær. Um það bil þrjátíu bílar hafa hlaðist upp fyrir utan heimili hennar. Erlent 30.10.2024 21:02
Ár frá andláti Ibrahims: „Hann er með okkur í hjarta og alls staðar í kring“ Fjölmenni kom saman í Hafnarfirði síðdegis í dag til minningar um Ibrahim Shah, átta ára dreng sem lést þegar steypubíl var ekið yfir hann á leið heim af fótboltaæfingu. Í dag, 30. október, er nákvæmlega ár frá slysinu. Innlent 30.10.2024 19:57
„Flokkarnir urðu skíthræddir“ Græningjar eru hættir við að bjóða fram í alþingiskosningum 30. nóvember næstkomandi. Formaður flokksins segir innkomu Græningja hafa hrætt hina flokkana og haft áhrif á lista þeirra. Flokkurinn muni bjóða fram í næstu alþingiskosningum. Innlent 30.10.2024 19:56
Flestir treysta Miðflokknum best fyrir málefnum hælisleitenda Samfylkingin nýtur mest trausts í flestum málaflokkum, nema í málefnum hælisleitenda þar sem flestir treysta Miðflokknum. Fleiri treysta Sjálftstæðisflokknum fyrir nokkrum málaflokkum en myndu kjósa hann. Innlent 30.10.2024 19:14
Fá ekki nauðsynlega þjónustu vegna verkfalls: „Það verður mikið rof á hans þroskaferli“ Fjögurra ára drengir með fötlun fá ekki lögbundna þjónustu meðan verkfall kennara stendur yfir. Mæður þeirra segja undarlegt að undanþágur séu ekki veittar frá verkfalli fyrir þennan viðkvæma hóp enda hafi rof á þjónustu gríðarleg áhrif á þroska barnanna. Innlent 30.10.2024 19:11
Húsnæði verði „fyrst og fremst heimili en ekki fjárfestingarvara“ „Við verðum að taka á þessu braski sem er á húsnæðismarkaði,“ segir Kristrún Frostadóttir formaður Samfylkingarinnar sem kynnti svokallað útspil flokksins í húsnæðis- og kjaramálum á Egilsstöðum síðdegis í dag. Innlent 30.10.2024 18:05
Þjónusturof hjá fötluðum börnum og hamfaraflóð á Spáni Fjögurra ára drengir með fötlun fá ekki lögbundna þjónustu meðan verkfall kennara stendur yfir. Mæður þeirra segja rof á þjónustu hafa áhrif á þroska barnanna. Rætt verður við þær í kvöldfréttum Stöðvar 2. Innlent 30.10.2024 18:02
Kjörstjórn borist 26 listar Frestur til að skila inn framboðslistum til Alþingiskosninga rennur út á hádegi á morgun. Alls hefur 26 listum verið skilað ásamt tilskildum fjölda meðmæla til Landskjörstjórnar, og því ljóst að einhverjir flokkar eiga enn eftir að skila af sér gögnum, ætli þeir sér að bjóða fram í öllum sex kjördæmum. Innlent 30.10.2024 16:30
Fær ekki krónu eftir slys í Húsdýragarðinum Kona sem lenti í slysi þegar hún renndi sér niður rennibraut í Fjölskyldu og húsdýragarðinum í Reykjavík á ekki rétt á skaðabótum frá borginni og tryggingafélagi hennar. Þetta er niðurstaða Héraðsdóms Reykjavíkur. Innlent 30.10.2024 16:24
Sammála um að of langt hafi verið gengið á Covid-tímum Fréttastofa Vísis og Stöðvar 2 freistaði þess að fá oddvita þeirra flokka við Pallborðið sem sækja fylgi sitt á hægri væng stjórnmálanna til að skerpa á því hvað það væri sem sameinaði þá og um hvað þeir væru ósammála. Innlent 30.10.2024 16:04
Segjast rannsaka ásakanir um kosningasvik í Georgíu Saksóknarar í Georgíu segjast nú rannsaka ásakanir stjórnarandstöðunnar í landinu um að úrslitum þingkosninga sem fóru fram um helgina hafi verið hagrætt. Stjórnarandstaðan og forseti landsins viðurkenna ekki úrslitin. Erlent 30.10.2024 14:51
Tók til baka það sem hún sagði um grunaðan höfuðpaur Kona sem sagði við lögregluna í upphafi apríl að hún hefði fengið fíkniefni frá Jóni Inga Sveinssyni, grunuðum höfuðpaur í Sólheimajökulsmálinu svokallaða, kannaðist ekki við það þegar hún bar vitni í dómsal í dag. Innlent 30.10.2024 13:33
Leita allra leiða til að lengja í séreignarsparnaði inn á lánin Formaður fjárlaganefndar segir ríkan vilja meðal þingmanna að framlengja heimild til rástöfunar séreignarsparnaðar inn á húsnæðislán. Til stendur að afnema þá heimild um áramótin. Hann gerir ráð fyrir að fjárlög verði afgreidd um miðjan nóvember. Innlent 30.10.2024 13:02
Skora á Höllu að stoppa Bjarna Sex náttúru- og dýraverndarsamtök skora á forseta Íslands að stöðva áform Bjarna Benediktssonar að gefa út hvalveiðileyfi á lokadögum tímabundinnar starfsstjórnar. Innlent 30.10.2024 12:29
Segist ekki transfóbískur en þó sammála J.K. Rowling Jón Magnússon, hæstaréttarlögmaður og frambjóðandi Sjálfstæðisflokksins, segist hvorki vera rasisti né transfóbískur. Hann rifjar upp tillögu sína á landsfundi Sjálfstæðisflokksins, sem var snarlega skotin í kaf, og segist sammála J.K Rowling hvað varðar málefni trans fólks. Innlent 30.10.2024 11:49
Færri börn undir eftirliti vegna E.coli en enn fimm á gjörgæslu Guðrún Aspelund sóttvarnalæknir á ekki von á því að niðurstöður úr rannsókn á uppruna E.coli smits á Mánagarði liggi fyrir fyrr en í fyrsta lagi við lok vikunnar eða um helgina. Leikskólinn er enn lokaður. Tíu börn eru undir undir eftirliti á bráðamóttöku Barnaspítalans eins og er samkvæmt upplýsingum frá Landspítalanum. Auk þess eru tíu börn inniliggjandi, þar af eru fimm á deild og fimm á gjörgæslu. Innlent 30.10.2024 11:43
Beðin um að tilkynna líkfundi Að minnsta kosti 51 er látinn í Valensía-héraði í hamfaraflóðum sem gengið hafa yfir suðausturhluta Spánar síðan í gær. Fjöldi Íslendinga hefur vetursetu á Spáni og í grennd við Valensía en utanríkisráðuneytið fylgist grannt með stöðu mála þar fyrir sunnan. Íslendingur á svæðinu segir óraunverulegt að upplifa hamfarirnar. Erlent 30.10.2024 11:42
Óttast að hermenn Kim öðlist reynslu af hernaði Ráðamenn í Suður-Kóreu óttast að Norður-Kórea fái aukna aðstoð frá Rússlandi í framtíðinni, bæði hernaðarlega og annarskonar aðstoð, og að norðurkóreskir hermenn sem talið er að muni berjast við Úkraínumenn á næstu vikum, öðlist reynslu af hernaði. Reynslu sem gæti aukið getu norðurkóreska hersins til muna. Erlent 30.10.2024 11:38
Kosningapallborðið: Formenn flokka sem bítast um fylgi frá hægri Í dag er mánuður til alþingiskosninga sem fara fram þann 30. nóvember. Fréttastofa Stöðvar 2, Bylgjunnar og Vísis heldur áfram að fá til sín góða gesti í Kosningapallborðið og nú er komið að fyrsta pallborðinu með formönnum stjórnmálaflokka sem bjóða fram til Alþingis. Innlent 30.10.2024 11:29
Verðbólgan hjaðnar og hamfaraflóð á Spáni Í hádegisfréttum fjöllum við um hamfaraflóðin sem gengið hafa yfir Valensíuhérað á Spáni. Innlent 30.10.2024 11:28
Skert athygli þegar ekið var inn á öfugan vegarhelming Aðdragandi banaslyss á Vesturlandsvegi til móts við Skipanes í desember í fyrra var sá að Toyota Yaris bifreið var ekið yfir á öfugan vegarhelming og framan á Volvo fólksbíl úr gagnstæðri átt. 66 ára kona sem ók Toyota bifreiðinni lést af völdum árekstursins og tveir í hinum bílnum slösuðust alvarlega. Innlent 30.10.2024 11:07
Þau skipa lista Sósíalista í Suðurkjördæmi Félagsfundur Sósíalista í Suðurkjördæmi samþykkti framboðslista í gær. Oddviti listans er Unnur Rán Reynisdóttir, hársnyrtir og hársnyrtikennari. Innlent 30.10.2024 10:51
„Ég tek alveg á mig það sem ég gerði, en hitt er ekki ég“ Jón Ingi Sveinsson, grunaður höfuðpaur Sólheimajökulsmálsins svokallaða, gaf sína þriðju skýrslu í aðalmeðferð málsins í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Þar viðurkenndi hann að hafa átt þátt í innflutningi á fíkniefnum sem voru flutt til landsins með skemmtiferðaskipinu AIDAsol. Hann segist þó ekki kannast við að hafa skipulagt innflutninginn. Innlent 30.10.2024 10:34