Fréttir
102 103 104 105 106 107 108 109 110 … 334 ›
Ljóst að banaslysið muni hafa afleiðingar Framkvæmdastjóri ferðaþjónustufyrirtækis telur að boðið verði upp á íshellaferðir í Breiðamerkurjökli á ný þrátt fyrir banaslysið sem þar varð í ágúst. Vatnajökulsþjóðgarður vinnur að aðgerðum til að tryggja öryggi. Innlent 6.9.2024 13:31
Flutningabíll með tengivagn fauk út af nærri Hólmavík Einn var fluttur til aðhlynningar læknis á Hólmavík í gær eftir að flutningabíll með tengivagn valt vegna mikils hvassviðris í um kílómetra fjarlægð frá Hólmavík. Hlynur Hafberg Snorrason yfirlögregluþjónn segir ökumanninn hafa verið með minni háttar meiðsl. Innlent 6.9.2024 13:28
Reyna enn að ná í mann sem er grunaður um að sviðsetja bílslys Lögbirtingablaðið hefur í annað skipti birt fyrirkall á hendur manni sem er talinn vera á Ítalíu vegna ákæru á hendur honum. Maðurinn er ákærður, ásamt öðrum manni sem er með skráð lögheimili í Reykjavík, um að setja á svið umferðarslys á gatnamótum Breiðhellu og Gjáhellu í Hafnarfirði þann 5. apríl 2021. Innlent 6.9.2024 11:47
Stjórnmálasamtök ávítuð fyrir vanskil á reikningum Aðeins 31,5 prósent þeirra stjórnmálaflokka eða samtaka sem sæti áttu á Alþingi eða buðu fram í kosningum til sveitastjórna árið 2022 hafa staðið skil á ársreikningum fyrir það ár. Mikill misbrestur hefur orðið á skilum ársreikninga stjórnmálasamtaka undanfarin ár. Innlent 6.9.2024 11:43
DD-listi Sjálfstæðisflokksins og eyðsla forsetaframbjóðenda Stjórnmálafræðingur segir fólk geta túlkað það sem veikleikamerki leyfi Sjálfstæðisflokkurinn framboð DD-lista. Örfá fordæmi eru fyrir viðbótarlistum í íslenskri stjórnmálasögu. Innlent 6.9.2024 11:41
Í gæsluvarðhaldi þangað til í nóvember Héraðsdómur Reykjavíkur hefur fallist á kröfu lögreglustjórans á Austurlandi um áframhaldandi gæsluvarðhald mannsins sem er grunaður um að hafa orðið hjónum að bana í Neskaupstað í ágúst. Innlent 6.9.2024 11:21
Komu til skila að hegðunin væri ekki líðandi Karlmaður sem hefur vanið komur sínar að leikvelli við Gerðasafnið í Kópavogi var færður til yfirheyrslu hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í gær. Málið er til rannsóknar. Innlent 6.9.2024 11:14
Af hættustigi niður á óvissustig Almannavarnastig hefur verið fært af hættustigi niður á óvissustig þar sem eldgosinu norðan við Stóra-Skógfell er lokið. Það er Ríkislögreglustjóri sem ákveður þetta í samráði við lögreglustjórann á Suðurnesjum. Innlent 6.9.2024 11:14
Kom út í plús eftir framboðið Kostnaður við framboð Jón Gnarrs til forseta nam 10.645.424 krónum en heildartekjur framboðsins voru 10.664.091 krónur og stóð framboðið því undir sér. Félagið Jón Gnarr sem var stofnað í apríl til að halda utan um framboðið kom því út í 18.667 króna plús. Innlent 6.9.2024 10:58
Sjö sóttu um embætti héraðsdómara Sjö umsækjendur voru um tvö embætti héraðsdómara sem dómsmálaráðuneytið auglýsti lausar til umsóknar í ágúst. Innlent 6.9.2024 10:54
Framboð Katrínar mun dýrara en Höllu Katrín Jakobsdóttir varði rúmlega 57 milljónum króna í forsetaframboð sitt. Það er rúmlega tvöfalt það sem Halla Tómasdóttir eyddi í framboð sitt. Kaupfélag Skagfirðinga var á meðal fjölmargra styrktaraðila Katrínar. Innlent 6.9.2024 10:36
Átta milljónir úr eigin vasa Ástþór Magnússon fjármagnaði framboð sitt til forseta Íslands að langstærstum hluta úr eigin vasa. Framboðið kostaði 8,9 milljónir króna og greiddi Ástþór 7,8 milljónir úr eigin vasa. Innlent 6.9.2024 10:17
Framboð Höllu kostaði 26 milljónir Halla Tómasdóttir varði 26 milljónum króna í framboð sitt til forseta Íslands. Þetta kemur fram í skýrslu hennar til Ríkisendurskoðunar. Innlent 6.9.2024 10:07
Bæjaryfirvöld á Ítalíu í stríði við íbúa frá Bangladess Yfirvöld í bænum Monfalcone á Ítalíu, skammt frá landamærum Slóveníu, hafa bannað krikket og iðkendur þurfa því að leita utan bæjarmarkanna til að æfa sig og spila. Erlent 6.9.2024 09:50
Eldgosinu er lokið og landris hafið í Svartsengi Eldgosinu norðan við Stóra-Skógfell sem hófst þann 22. ágúst er nú lokið en engin sjáanleg virkni hefur verið í gígum á svæðinu í um hálfan sólarhring. Þetta kemur fram í tilkynningu á vefsíðu Veðurstofu Íslands. Innlent 6.9.2024 09:49
Sumarið það hlýjasta frá upphafi Sumarið sem líður er það hlýjasta á jörðinni frá upphafi mælinga, að sögn vísindamanna Kópernikusar, loftslagsstofnunar Evrópu. Erlent 6.9.2024 09:08
Rannsókn lögreglu á áhöfn Hugins VE lokið Rannsókn lögreglu á áhöfn Hugins VE í Vestmannaeyjum er nú lokið. Karl Gauti Hjaltason lögreglustjóri í Vestmannaeyjum segir lögreglu hafa lokið rannsókn sinni nýlega, í lok sumars, og hafi þá sent málið til ákærusviðs. Hann á von á ákvörðun þeirra á næstu vikum. Innlent 6.9.2024 09:04
Ljóst hverjir verða á nýjum dönskum peningaseðlum Barnabókarithöfundurinn H.C. Andersen og grænlenski landkönnuðurinn Arnarulunnguaq eru meðal þeirra sem munu prýða þá dönsku peningaseðla sem verða settir í umferð í Danmörku og á Grænlandi árið 2028. Erlent 6.9.2024 08:51
Project 2025 og Bandaríkin eftir Trump: „Ég held að það sé alveg ástæða til að hafa áhyggjur“ „Ég held að það sé alveg ástæða til að hafa áhyggjur en það er ekkert sjálfsagt að þetta gangi allt í gegn,“ sagði Silja Bára Ómarsdóttir, prófessor í stjórnmálafræði, um Project 2025 í þættinum Baráttan um Bandaríkin á miðvikudag. Erlent 6.9.2024 07:50
Engin útköll hjá björgunarsveitum í nótt Engin útköll voru hjá björgunarsveitum vegna veðurs í gærkvöldi og í nótt eftir annasaman dag á norðurhluta landsins þegar mikið hvassviðri gekk yfir. Innlent 6.9.2024 07:34
Hvessir aftur þegar líður á daginn Veðurstofan gerir ráð fyrir suðvestan kalda framan af degi en að hvessi svo aftur þegar líður á daginn. Gera má ráð fyrir hvassviðri norðvestantil, en annars víða strekkings vindi. Veður 6.9.2024 07:09
Stjórnvöld í Kína banna ættleiðingar frá landinu Stjórnvöld í Kína hafa ákveðið að banna ættleiðingar frá landinu, nema í þeim tilvikum þegar um er að ræða ættingja sem vilja ættleiða barn sér skylt. Erlent 6.9.2024 07:07
Gaf syni sínum byssu þrátt fyrir hótanir um skotárás Faðir Colt Gray, fjórtán ára piltsins sem grunaður er um að hafa myrt fjóra í framhaldsskóla í Georgíu í Bandaríkjunum, hefur verið handtekinn og á yfir höfði sér ákæru. Erlent 6.9.2024 06:50
Ekki hægt að fara í skurðaðgerð til að losna við fíknisjúkdóminn Ragnheiður Hulda Friðriksdóttir forstjóri SÁÁ segir nýjan samning samtakanna við Sjúkratryggingar Íslands tímamótasamning. Samningurinn felur í sér fimmfalda aukningu á aðgengi að lyfjameðferð hjá SÁÁ fyrir einstaklinga með alvarlega ópíóðafíkn. Innlent 6.9.2024 06:45
Fjöldi grunnskólabarna lést í eldsvoða Sautján grunnskólabörn hið minnsta fórust í eldsvoða í grunnskóla í Kenía í gærkvöldi. Erlent 6.9.2024 06:43
Átta réðust á einn og höfðu af honum gleraugun Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sinnti meðal annars fimm útköllum vegna líkamsárása á vaktinni i gærkvöldi og nótt og þremur vegna heimilisofbeldis. Innlent 6.9.2024 06:24
Amaði ekkert að ferðamönnum sem sendu neyðarboðin Ekkert amaði að erlendum ferðamanni sem sendi neyðarboð úr neyðarskýli í Hlöðuvík fyrr í dag. Áhöfn varðskips Landhelgisgæslunnar komst í samband við ferðafólkið á tíunda tímanum í kvöld. Innlent 5.9.2024 22:16
„Aldrei upplifað annan eins storm“ „Nú þegar erum við búnir að keyra fram hjá tveimur húsbílum sem hafa farið út af veginum,“ segir Björn Steinbekk ljósmyndari sem er þessa stundina staddur norður á landi, nánar tiltekið á Möðrudalsöræfum þar sem gríðarlegt hvassviðri með tilheyrandi sandbyljum gerir ökumönnum erfitt um vik. Innlent 5.9.2024 21:37
Fyrsta Airbus-þota Icelandair að verða tilbúin í reynsluflug Smíði fyrstu Airbus-þotu Icelandair er langt komin í flugvélaverksmiðju í Hamborg og er hún væntanleg til landsins í nóvember. Icelandair á von á fjórum slíkum þotum í flotann fyrir næsta sumar. Innlent 5.9.2024 21:21
Hnífstungumaður talinn sakhæfur og fer fyrir dóm Aðalmeðferð í máli karlmanns á fimmtugsaldri sem er ákærður fyrir tilraun til manndráps í Vesturbæ Reykjavíkur í vetur á að hefjast á mánudag. Maðurinn hefur setið í gæsluvarðhaldi frá því í janúar. Hann er talinn sakhæfur. Innlent 5.9.2024 21:12