Erlent

Gera ráð fyrir að þúsundir líka sé að finna í húsarústunum

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Nour og bróðir hennar Mohamed Ballas reyna að bjarga því sem bjargað verður úr húsarústum heimilis fjölskyldunnar í Rafah.
Nour og bróðir hennar Mohamed Ballas reyna að bjarga því sem bjargað verður úr húsarústum heimilis fjölskyldunnar í Rafah. AP/Abdel Kareem Hana

Viðbragðsaðilar á Gasa segjast gera ráð fyrir því að yfir 10 þúsund lík sé að finna í húsarústum á svæðinu. Vonir standa til að hægt verði að fjarlægja líkin á næstu 100 dögum en skortur á jarðýtum og öðrum búnaði mun líklega seinka aðgerðum.

Þúsundir íbúa Gasa hafa nú snúið aftur til heimkynna sinna eftir að Ísrael og Hamas sömdu um vopnahlé. Heimkynnin eru þó í flestum tilvikum húsarústir en Sameinuðu þjóðirnar áætla að yfir 60 prósent bygginga á Gasa hafi skemmst eða eyðilagst í loftárásum Ísraelshers.

Langflestir íbúa Gasa, tvær milljónir, eru án heimilis og tekna og reiða sig á neyðaraðstoð til að komast af. Aðstoðin hefur sem betur fer aukist verulega frá því að vopnahlé komst á en 630 flutningabifreiðar hlaðnar neyðargögnum óku inn á svæðið á sunnudag og 915 í gær.

Gríðarlegrar fjárfestingar er þörf á Gasa til að endurreisa svæðið. Íbúar eru farnir að snúa aftur heim og segjast staðráðnir í þvi að endurbyggja.AP/Jehad Alshrafi

BBC hefur eftir Sam Rose, starfandi framkvæmdastjóra Palestínuflóttamannaaðstoðar Sameinuðu þjóðanna, að það séu ekki aðeins innviðirnir sem þarfnist endurbyggingar heldur einnig einstaklingurinn og fjölskyldurnar.

„Trámað sem [íbúarnir] hafa upplifað, þjáningin, missirinn, sorgin, niðurlægingin og grimmdin sem þeir hafa mátt þola síðustu sextán mánuði; þetta er langur vegur.“

Heilbrigðisyfirvöld í Palestínu áætla að um 47 þúsund hafi verið drepnir á Gasa og yfir 110 þúsund særðir. Þau hafa ekki upplýst um hlutfall bardagamanna af látnu en segja meirihlutann konur og börn.

„Á hverri götu eru látnir. Í hverju hverfi er fólk undir rústunum,“ segir Abdullah Al-Majdalawi, 24 ára viðbragðsaðili. Fólk sé enn að hringja og tilkynna um ástvini grafna í húsarústum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×