Fótbolti

Svekkjandi hjá lærisveinum Rúnars

Árni í búningi Lilleström.
Árni í búningi Lilleström. mynd/lilleström
Íslendingaliðið Lilleström missti unninn leik niður í jafntefli í dag.

Lilleström gerði þá 1-1 jafntefli gegn Aalesund en jöfnunarmark Aalesund kom einni mínútu fyrur leikslok.

Árni Vilhjálmsson og Finnur Orri Margeirsson voru báðir í byrjunarliði Rúnars Kristinssonar hjá Lilleström í dag en Árni fór svo af velli á 75. mínútu.

Lilleström er búið að gera jafntefli í fyrstu tveimur leikjum sínum í deildinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×