Eldgos og jarðhræringar
96 97 98 99 100 101 102 103 104 … 132 ›
Hættustig vegna jarðskjálftanna nú einnig í Árnessýslu Hættustig almannavarna vegna jarðskjálftahrinu á Reykjanesskaga er nú einnig í gildi í Árnessýslu. Fyrr í dag var hættustigi lýst yfir á Reykjanesi og höfuðborgarsvæðinu. Innlent 24.2.2021 20:24
Höfuðborgarbúar um jarðskjálftann: „Svolítið eins og þú sért á sjó“ Að finna fyrir jarðskjálfta á efstu hæðum Turnsins í Kópavogi jafnast á við að vera úti á sjó, að sögn matreiðslumanns. Fólk sem fann fyrir skjálftanum á höfuðborgarsvæðinu er sammála um að upplifunin sé verulega óþægileg. Innlent 24.2.2021 19:30
Aðdragandi að eldgosi allt frá korteri og upp í vikur Jarðskjálftar um og yfir sex að stærð gætu orðið á Reykjanesskaga þar sem öflug skjálftahrina hefur riðið yfir í dag. Sérfræðingar fylgjast nú náið með því hvort skjálftavirknin færi sig austar. Þá gæti aðdragandi að eldgosi verið allt frá korteri og upp í daga og vikur. Innlent 24.2.2021 19:30
Leikskólabörn með rétt viðbrögð á hreinu: „Það kom engin risastór gufa“ Leikskólabörn á Fífuborg brugðust hárrétt við jarðskjálftanum í dag enda höfðu þau nýlokið viðbragðsæfingu þegar skjálftinn reið yfir. Innlent 24.2.2021 19:01
Tveir skjálftar yfir 5 að stærð og tíu yfir 4 Í dag hafa orðið tveir skjálftar yfir 5,0 að stærð í hrinunni á Reykjanesskaga. Sá stærri varð klukkan 10:05 af stærð 5,7 og annar klukkan 10:30, sem mældist 5,0 að stærð. Innlent 24.2.2021 17:43
Vedur.is hrundi þegar 70 þúsund manns vildu þangað inn í einu Árni Snorrason forstjóri Veðurstofunnar segir að þegar hafi farið fram gagngerar endurbætur á vefnum vedur.is, sem lagðist niður í morgun, og þeim sé ekki lokið. Innlent 24.2.2021 17:10
Besti dagur ársins í Bláfjöllum en bannað að skíða Einar Bjarnason rekstrarstjóri skíðasvæðisins í Bláfjöllum var súr með að þurfa að loka skíðasvæðinu eftir hádegið í dag að kröfu almannavarna. Hann segir veðrið ekki hafa verið jafngott í ár og færið frábært. Vegna jarðskjálftanna á Reykjanesi í dag hafa almannavarnir lýst yfir hættustigi og gert þá kröfu að skíðasvæðinu verði lokað. Innlent 24.2.2021 16:10
„Ég hélt að þetta ætlaði aldrei að klárast“ Gísli Benedikt Gunnarsson kennari við 2. bekk í Grunnskólanum í Grindavík segist hafa haldið að jarðskjálftahrinan í morgun myndi aldrei klárast. Kennarar og nemendur hafi búið vel að jarðskjálftaæfingum frá því í fyrra. Dótadagur verður í grunnskólanum í Grindavík á morgun. Innlent 24.2.2021 15:25
Skjálfti reið yfir í miðju viðtali Þótt alvön sé skjálftum þá brá Kristínu Maríu Birgisdóttur, upplýsingafulltrúa Grindavíkurbæjar, þegar stóri skjálftinn reið yfir í morgun sem mældist 5,7 að stærð. Innlent 24.2.2021 15:14
Tár á kinnum grunnskólabarna í Grindavík Hin átta ára gamla Ásdís Vala Pálsdóttir var á meðal nemenda Grunnskóla Grindavíkur sem var nokkuð brugðið í morgun. Stórir skjálftar hafa dunið yfir með reglulegu millibili en upptök þeirra eru í nágrenni bæjarins. Ásdís Vala segir marga krakka hafa verið hrædda í skólanum í morgun. Innlent 24.2.2021 14:52
Skyndilegt hlé í beinni hjá Sóleyju vegna skjálftans Tónlistarkonan Sóley kom fram ásamt fullskipaðri sveit á Háskólatónleikum Háskóla Íslands í hádeginu í dag. Þegar tónleikarnir voru um það bil hálfnaðir dundi jarðskjálfti yfir. Um er að ræða enn einn skjálftann á suðvesturhorninu sem fannst vel á höfuðborgarsvæðinu. Lífið 24.2.2021 14:07
Hættustigi lýst yfir Hættustigi almannavarna hefur verið lýst yfir á höfuðborgarsvæðinu og Reykjanesi vegna öflugrar jarðskjálftahrinu sem gengur nú yfir. Hættustigið er sett á til að samhæfa aðgerðir ýmissa verklagsaðila og stofnana og hefur ekki áhrif á almenning. Enn fremur er það sett á ef heilsu og öryggi manna, umhverfis eða byggðar er ógnað af náttúru- eða mannavöldum en ekki svo alvarlegar að um neyðarástand sér að ræða. Innlent 24.2.2021 14:01
Við tökur á myndbandi til vina þegar 4,6 skjálftinn reið yfir Margrét Kristín Pétursdóttir, Grindvíkingur í húð og hár og starfsmaður hjá fiskvinnslunni Vísi, segir margan bæjarbúann vanann jarðskjálftum, finnist þeir jafnvel spennandi eða fyndnir. Það sem gekk á í morgun hafi verið ólíkt fyrri skjálftum enda margir óvenju stórir skjálftar sem geri að verkum að vanasta fólk verði smeykt. Innlent 24.2.2021 13:26
Fjölmörg myndbönd frá lesendum sýna hristinginn í morgun Lesendur Vísis á suðvesturhorninu fundu margir hverjir fyrir jarðskjálftahrinunni í morgun. Margir svöruðu kalli fréttastofu og sendu myndbönd sem þeir náðu og sýndu skjálftann. Innlent 24.2.2021 12:32
Með stærri hrinum frá upphafi mælinga „Þetta er með stærri hrinum sem við höfum upplifað á þessum flekaskilum frá upphafi mælinga. Svoleiðis að þetta er mjög athyglisverður atburður sem er í gangi núna þessa klukkutímana,“ segir Páll Einarsson jarðeðlisfræðingur. Ekki er útilokað að kvika rati upp á yfirborðið. Innlent 24.2.2021 12:32
Starfsmaður Landsbankans slasaðist í skjálftanum Starfsmaður Landsbankans sem var við störf í höfuðstöðvum bankans í miðbæ Reykjavíkur varð fyrir því óláni í skjálftahrinunni í morgun að fá loftplötu í höfuðið. Rúnar Pálmason, upplýsingafulltrúi bankans, staðfestir þetta í samtali við fréttastofu. Innlent 24.2.2021 12:02
Stóri skjálftinn hluti af hrinu sem hófst í Krýsuvík fyrir nokkrum dögum Skjálfti að stærðinni 5,7 sem reið yfir klukkan 10:05 í morgun og átti upptök sín um þrjá kílómetra suðsuðvestur af Keili er hluti af hrinu sem hófst í Krýsuvík fyrir nokkrum dögum. Innlent 24.2.2021 11:56
Jarðskjálftavirknin ein sú mesta sem sést hefur á Reykjanesi Jarðskjálftahrinan á Suðurnesjum er enn í gangi og allt eins von á að fleiri skjálftar finnist í byggð. Kristín Jónsdóttir, hópstjóri náttúruvárvöktunar Veðurstofu Íslands, segir mjög öfluga virkni á svæðinu en jarðskjálftar hafi komið hver á eftir öðrum nú í rúma klukkustund Innlent 24.2.2021 11:36
Hvorki tilkynningar um slys né tjón Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn hjá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra segir engar tilkynningar hafa borist um tjón eða slys enn sem komið er vegna stórrar og stöðugrar skjálftahrinu á Reykjanesinu í morgun. Innlent 24.2.2021 11:32
Þjóðin bregst við skjálftunum:„Hefur einhver séð Helga Hrafn?“ Stórir jarðskjálftar fundust á höfuðborgarsvæðinu og víðar upp úr klukkan tíu í morgun. Skjálftarnir fundust meðal annars í Stykkishólmi og Skorradal og virðist ekkert lát á skjálftavirkni sem hefur verið töluverð undanfarnar mínútur. Lífið 24.2.2021 11:10
Segir bæjarbúum líða illa vegna jarðskjálftanna Fannar Jónasson, bæjarstjóri í Grindavík, segir ekki góða stemningu í bænum í þeirri jarðskjálftahrinu sem nú gengur yfir Reykjanesið. Fólki líði illa og hafi í einhverjum tilfellum farið heim úr vinnu. Innlent 24.2.2021 11:01
Suðvesturhornið nötrar og stærsti skjálftinn 5,7 að stærð Jörð hefur skolfið á suðvesturhorni landsins í morgun og virðist ekkert lát á skjálftavirkni. Fyrstu skjálftar fundust upp úr klukkan tíu og enn skelfur jörð þegar klukkan er að verða ellefu. Skjálftar hafa fundist á höfuðborgarsvæðinu, vestur í Stykkishólm og austur á Helllu. Innlent 24.2.2021 10:07
Etna spúði kviku í kílómetra hæð Eldfjallið Etna, stærsta virka eldfjall Evrópu, lét aftur á sér kræla í nótt þegar það spúði kviku hátti til himins. Mikil virkni hefur verið í eldfjallinu undanfarið en byggðir á Sikiley hafa ekki verið í hættu. Erlent 21.2.2021 10:04
RAX: „Það er eins og kölski sé að horfa beint á okkur“ „Alltaf þegar ég er að fljúga þá er ég alltaf að leita að allskonar fígúrum, formum og andlitum. Ég bjóst nú reyndar ekki við því í Holuhrauni þegar ég fór þangað að sjá einhver andlit.“ Þetta segir Ragnar Axelson um reynslu sína þegar hann myndaði gosið í Holuhrauni árið 2014. Menning 21.2.2021 07:01
„Ekkert merkilegt“ en sjónrænt eldgos í Etnu Etna, stærsta virka eldfjall Evrópu, byrjaði að gjósa með látum gær og sendir reyk og ösku hátt til himins. Sérfræðingar á Sikiley segjast þó hafa séð það verra og er eldgosið ekki sagt ógna nærliggjandi byggðum en þrjú þorp eru vöktuð. Erlent 17.2.2021 13:04
Veitur auka vöktun neysluvatns í Heiðmörk Veitur hafa sett upp vöktunarbúnað til að vakta mögulegar breytingar á efnainnihaldi neysluvatns frá vatnstökusvæðum í Heiðmörk ef kæmi til eldgoss á Reykjanesskaga. Þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækinu. Innlent 16.2.2021 08:26
Stór skjálfti undan strönd Japans Skjálfti sem mældist 7,1 að stærð reið yfir austur af Japan um klukkan 14 í dag, eða klukkan rúmlega 23 að staðartíma. Erlent 13.2.2021 15:28
Skjálfti 4,0 að stærð í Bárðarbungu Skjálfti 4,0 að stærð varð í austanverðri Bárðarbunguöskjunni klukkan 02:29 í nótt. Innlent 13.2.2021 08:00
Jörð skelfur norðaustur af Grímsey og á Reykjanesi Jarðskjálftahrina er nú í gangi norðaustur af Grímsey. Á vef Veðurstofunnar kemur fram að klukkan 20:20 í gærkvöldi hafi orðið jarðskjálfti af stærðinni 2,8 sem hafi fundist í eynni. Innlent 10.2.2021 08:21
Jarðskjálfti nærri Grindavík Í nótt klukkan 01:26 varð jarðskjálfti 2,6 að stærð 3,2 kílómetra norðaustur af Grindavík. Innlent 1.2.2021 06:33