Eldgos og jarðhræringar
56 57 58 59 60 61 62 63 64 … 132 ›
Hættustig Almannavarna virkjað Hættustig Almannavarna hefur verið virkjað vegna eldgossins sem hafið er við Litla-Hrút. Innlent 10.7.2023 17:45
Þyrluflug yfir gosstöðvar Vísir var í beinni útsendingu frá þyrluflugi yfir nýjum gosstöðvum á Reykjanesi eftir að gos hófst um klukkan 16:40 við Litla-Hrút. Innlent 10.7.2023 17:26
Gos hafið á Reykjanesi: „Mikil hætta á að fólk verði fyrir gaseitrun“ Eldgos er hafið við fjallið Litla-Hrút á Reykjanesi, skammt frá Meradölum þar sem hraun kom upp á síðasta ári. Mikinn reyk og gas leggur nú upp af Reykjanesi og er talið að sprungan sé um 1.500 metrar að lengd. Fréttastofa Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar mun fylgjast vel með þróun mála og má sjá allt það nýjasta í vaktinni. Innlent 10.7.2023 16:48
Skjálftaskuggi myndaðist á laugardag Skjálftaskuggi myndaðist síðastliðinn laugardag norðaustur af Fagradalsfjalli og suðvestur af Keili. Möguleiki er að kvika safnist þar fyrir en hugtakið nær yfir svæði þar sem nær engir skjálftar verða utan lítilla jarðhræringa. Innlent 10.7.2023 15:49
Allar vefmyndavélarnar á einum stað Eldgos hófst við Litla-Hrút síðdegis mánudaginn 10. júlí eftir tæplega viku langa skjálftahrinu. Innlent 10.7.2023 15:47
„Jörðin opnast beint fyrir framan okkur“ Hjón úr Hafnarfirði urðu vitni að því hvar jörðin opnaðist fyrir framan þau þar sem þau voru stödd við nálægt skjálftaupptökum við Keili í gærkvöldi þegar að stærsti skjálfti hrinunnar til þessa reið yfir. Innlent 10.7.2023 13:19
Skjálfti gærkvöldsins „eins og skrattinn úr sauðarleggnum“ Jarðeðlisfræðingur segir afar óvenjulegt að jafn stórir jarðskjálftar og sá sem reið yfir í gærkvöldi fylgi gosbyrjunum. Þrátt fyrir það séu ekki teikn á lofti um að dregið hafi úr líkum á eldgosi. Innlent 10.7.2023 11:48
Landsnet býr sig undir nokkrar sviðsmyndir á Reykjanesi Landsnet býr sig nú undir nokkrar sviðsmyndir ef til þess kemur að það muni gjósa á Reykjanesskaga og hraunflæðið myndi ógna flutningskerfi rafmagns á svæðinu. Þetta kemur fram í tilkynningu. Innlent 10.7.2023 11:48
Segir jörðina liðast í sundur á Reykjanesi Bandarískur áhrifavaldur, sem er búsettur hér á landi, segir jarðskjálfta á Reykjanesi í gær vera það ógnvænlegasta sem hann hefur upplifað á landinu. Þá deilir hann mynd af stærðarinnar holu sem myndaðist á vegi á svæðinu. Lífið 10.7.2023 07:51
„Skrýtið að þetta skuli ekki vera komið upp“ „Þetta hefur aðeins minnkað; aðeins fækkað skjálftunum og þeir eru allir minni,“ segir Böðvar Sveinsson, náttúruvársérfræðingur hjá Veðurstofu Íslands um þróun skjálftavirkninnar á Reykjanesskaga. Innlent 10.7.2023 06:28
Stærsti skjálftinn til þessa Öflugur jarðskjálfti reið yfir um klukkan 22:23 í kvöld skammt frá Keili og fannst víða um land. Skjálftinn virkaði ansi stór og varði nokkuð lengi. Yfirfarin stærð hans er 5,2 og er hann sá stærsti sem mælst hefur í skjálftahrinunni á Reykjanesi sem hófst 4. júlí. Innlent 9.7.2023 22:24
Dregið úr skjálftavirkni seinni partinn Áframhaldandi skjálftavirkni er á Reykjanesi en áfram bólar ekkert á eldsumbrotum. Skjálfti að stærð 2,6 mældist við Keili skömmu fyrir klukkan 21 og fylgdu smáskjálftar í kjölfarið. Innlent 9.7.2023 21:33
Kvikugangurinn sé að færast nær yfirborðinu Um fjórtán hundruð jarðskjálftar hafa mælst frá miðnætti. Skjálftavirknin hefur þó róast seinnipartinn. Nýjustu gögn benda til þess að kvikugangurinn sé að færast nær yfirborðinu. Innlent 9.7.2023 16:58
Nokkuð kröftugir skjálftar og verið að skoða tvo möguleika Nokkuð kröftugir skjálftar mældust í nótt og í morgun. Náttúruvársérfræðingur hjá Veðurstofu Íslands segir að verið sé að velta upp tveimur möguleikum í stöðunni. Þá er varað við grjóthruni á skjálftasvæðinu. Innlent 9.7.2023 12:14
Enn talsverð virkni á Reykjanesi Enn er talsverð virkni á Reykjanesi og hefur hún lítið breyst undanfarna daga. Stærsti skjálfti næturinnar varð um korter yfir tólf í nótt og var hann 4,1 að stærð. Skömmu áður greindist 3,8 skjálfti. Innlent 9.7.2023 07:25
Staðan á Reykjanesi eftir daginn í dag Náttúruvársérfræðingur hjá Veðurstofu Ísland segir að staðan á Reykjanesinu sé ennþá óbreytt frá því fyrr í kvöld. Nokkuð kröftugur jarðskjálfti reið yfir rétt fyrir klukkan 18 í dag en ennþá er ekki byrjað að gjósa. Innlent 9.7.2023 00:00
Voru stödd við upptök skjálftans: „Höfum aldrei upplifað annað eins“ Jarðskjálfti að stærðinni 4,5 reið yfir rétt fyrir klukkan 18 í dag. Skjálftinn átti upptök sín vestan við Kleifarvatn. Hjón sem voru stödd við vatnið þegar skjálftinn kom segjast aldrei hafa upplifað annað eins. Innlent 8.7.2023 20:17
Jarðskjálftinn yfir fjórir að stærð Rétt fyrir klukkan 18 fannst snarpur jarðskjálfti vel á suðvesturhorninu. Náttúruvárvakt Veðurstofu Íslands segir að umræddur skjálfti hafi verið 4,5 að stærð og að hann hafi átt upptök sín rétt vestan við Kleifarvatn. Innlent 8.7.2023 17:58
Kvikan það grunnt að ekki er hægt að styðjast lengur við GPS-gögn Lítið sem ekkert er að frétta af stöðu kvikunnar á Reykjanesi frá því í hádeginu í dag og staðan nokkuð óbreytt. Þá hefur skjálftavirknin á svæðinu verið með mjög svipuðu móti. Innlent 8.7.2023 16:57
Slösuð kona sótt á skjálftasvæðið og margir á vappi Björgunarsveitin Þorbjörn í Grindavík fékk útkall klukkan 12:45 vegna konu sem hafði slasað sig á skjálftasvæðinu milli Keilis og Fagradalsfjalls. Aðgerðum lauk um klukkan tvö en mikil umferð ferðamanna er á svæðinu. Fólk er beðið að fara varlega á svæðinu. Innlent 8.7.2023 14:50
„Hátíðin er fyrst og fremst til að þakka að ekki fór verr“ Skipuleggjendur Goslokahátíðarinnar í Vestmannaeyjum segja hátíðina hafa gengið snurðulaust fyrir sig í ár en fimmtíu ár eru frá eldgosinu. Lífið 8.7.2023 14:19
Kvikan hugsanlega komin verulega nærri yfirborði Ný GPS gögn benda til þess að kvikan á Reykjanesi sé á kílómetra dýpi, eða jafnvel grynnra dýpi en það. Skjálftar mælast bæði á svæðinu á milli Keilis og Fagradalsfjalls og Eldey en þó færri en í upphafi hrinunnar. Innlent 8.7.2023 11:50
Lítið að gerast í nótt Áfram dró úr skjálftavirkni milli Fagradalsfjalls og Keilis í nótt. Margir smærri skjálftar mældust en sá stærsti mældist 3,3 að styrk en hann var rétt rúmlega tólf í nótt. Skömmu áður mældist skjálfti fjögur stig. Innlent 8.7.2023 07:37
Jarðskjálfti og rauður blettur en ekkert eldgos hafið Nokkuð snarpur jarðskjálfti átti sér stað á tólfta tímanum í kvöld. Þá hafa borist ábendingar um að eldgos gæti verið hafið miðað við reyk og annað sem sjá má á vefmyndavélum. Svo er hins vegar ekki. Innlent 7.7.2023 23:45
Tala um að eldgos hefjist eftir klukkustundir til daga Þorvaldur Þórðarson eldfjallafræðingur segir að klukkustundir til dagar séu í að mögulegt eldgos hefjist. Kvikan sé að leita sér að leið upp að yfirborðinu, þegar leiðin finnst verði hún fljót að komast upp. Innlent 7.7.2023 22:01
Stefni allt í að gjósi á milli Fagradalsfjalls og Keilis Það stefnir allt í það að gangurinn undir svæðinu á milli Fagradalsfjalls og Keilis sé að fara að gjósa. Þetta kemur fram í tilkynningu frá rannsóknarstofu Háskóla Íslands í eldfjallafræði og náttúruvá. 7000 skjálftar hafa mælst síðan skjálftahrinan hófst á Reykjanesi þann 4. júlí og innflæði kviku er tvöfalt hraðari en í fyrra. Innlent 7.7.2023 13:57
Hægir á landrisi, dregur úr skjálftum og „stefnir allt í gos“ Enn hægist á landrisi og dregur úr skjálftavirkni á Reykjanesskaga, rétt eins og fyrir eldgosið í Fagradalsfjalli á síðasta ári. Eldfjallafræðingur segir allt stefna í eldgos, en kvika geti þó mallað í lengri tíma grunnt undir jarðskorpunni. Innlent 7.7.2023 11:43
Líkur á mun kröftugra gosi Kvikuinnflæði í innskot milli Fagradalsfjalls og Keilis er 88 rúmmetrar á sekúndu. Lovísa Mjöll Guðmundsdóttir náttúruvársérfræðingur segir um töluverðan hraða að ræða og meiri en í fyrri gosum á Reykjanesi. Innlent 7.7.2023 10:55
Vogamenn búa sig undir eldgos í sínu sveitarfélagi Ráðamenn Voga á Vatnsleysuströnd eru viðbúnir því að eldgos gæti brotist upp í þeirra sveitarfélagi. Miðað við mat jarðvísindamanna á kvikuganginum, sem veldur jarðskjálftunum á Reykjanesi, gæti hann náð yfirborði þar sem landi hallar í átt að Faxaflóa. Innlent 7.7.2023 10:10
Gæti gosið hvenær sem er Um 6.500 jarðskjálftar hafa nú mælst á svæðinu á milli Fagradalsfjalls og Keilis frá því að yfirstandandi hrina hófst. Fimmtán skjálftar voru yfir fjórir að stærð og tugir yfir þremur. Innlent 7.7.2023 06:47