Innlent

Skjálfti upp á 2,9 í gær­kvöldi

Kristinn Haukur Guðnason skrifar
Upptökin voru á fjögurra kílómetra dýpi við Keili.
Upptökin voru á fjögurra kílómetra dýpi við Keili. Arnar Halldórsson

Jarðskjálfti að stærðinni 2,9 mældist norður af Keili klukkan rúmlega 22:00 í gærkvöldi. Þetta er stærsti jarðskjálftinn sem hefur mælst á Reykjanesskaga frá því að eldgosinu við Litla-Hrút lauk formlega, þann 15. ágúst.

Upptök jarðskjálftans var á fjögurra kílómetra dýpi.

Nokkrir minni skjálftar riðu yfir á Reykjanesi í gær, einkum með upptök í og við Keili, sá síðasti klukkan 1:00 í nótt.

Fréttastofu er ekki kunnugt um að fólk hafi fundið fyrir þessum skjálftum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×